Ástralska lögreglan gerði upptæk 2,7 tonn af kókaíni á föstudag sem voru falin í neðanjarðarbyrgjum í Londonderry, úthverfi Sydney. Efnunum hafði verið komið fyrir undir fölskum gólfum í þremur flutningagámum.
Samkvæmt breska ríkisútvarpinu er þetta mesta magn fíkniefna sem ástralska lögreglan hefur lagt hald á í einni lögregluaðgerð.
Götuverðmæti fíkniefnanna eru metin á um 816 milljónir ástralskra dollara eða tæpa 72 milljarða íslenskra króna. Lögreglan segir að efninu hafi verið smyglað til Ástralíu um smábæinn Midge Point í norður Queensland af skipulögðum glæpahópum.
Tveir menn á þrítugsaldri voru handteknir á vettvangi þar sem efnin fundust. Þeir eiga yfir höfði sér allt að lífstíðarfangelsi verði þeir fundir sekir um að eiga efnin. Þá hafa 6 aðrir verið handteknir í tengslum við málið.
Lögreglan vinnur enn að rannsókn málsins, meðal annars að því að upplýsa um það hvaðan efnunum var smyglað til Ástralíu.