Fjöl­skyldan í sárum og biður for­eldra um að fylgjast með net­notkun barna - Vísir

Fjöl­skyldan í sárum og biður for­eldra um að fylgjast með net­notkun barna - Vísir

Fjöl­skyldan í sárum og biður for­eldra um að fylgjast með net­notkun barna - Vísir

Katrín stofnaði nýverið Facebook-hóp fyrir aðstandendur ungmenna sem hafa lent í 764. Markmiðið er að fólk í þessari erfiðu stöðu geti komið saman og veitt hvert öðru stuðning. Málið hefur reynt mjög á dóttur hennar og fjölskylduna alla.

„Þetta hefur haft hræðileg áhrif á okkur, bara vægast sagt. Stelpan er náttúrulega alveg í molum. Andlega hliðin er ekki góð og það er það sama hjá okkur.“ 

Eftir að Guðbjörg Emilía Walker lenti í klóm hópsins aðeins þrettán ára gömul var hún þvinguð til að skaða sjálfa sig í beinu streymi og hvött til þess að beita aðra ofbeldi. Þá varð hún vitni að grófu ofbeldi og þremur sjálfsvígum ungmenna í beinu streymi.

Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. 

Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is.

Guðbjörg hefur áður rætt reynslu sína í Kastljósi en ákvað nú í fyrsta sinn að koma fram undir nafni. Hún greindi upphaflega frá ofbeldinu í myndskeiði á samfélagsmiðlinum TikTok og í kjölfarið setti bandaríska alríkislögreglan FBI sig í samband við hana.

Hópurinn 764 er einn margra sem eru til rannsóknar hjá FBI og Evrópulögreglunni Europol. Saman mynda þeir net ofbeldishópa sem herja markvisst á börn á internetinu, beita þau kynferðisofbeldi, dreifa kynferðislegu efni af þeim og hvetja þau til ofbeldisverka. 

Í maí hófust réttarhöld yfir átján ára ungmenni í Umeå í Svíþjóð sem er ákærður fyrir meira en sjötíu brot þvert yfir landamæri. Hann er meðal annars sakaður um að hafa þvingað börn til að skera sig og skrifa númer hópsins með blóði sínu. Þá er honum gert að hafa stýrt sjálfsvígstilraunum, nauðgunum og ofbeldi gegn köttum í gegnum netið. Katrín segir að Guðbjörg sé meðal fórnarlamba hans.

Hann var handtekinn í skólastofu í apríl 2025 og er grunaður um að hafa kerfisbundið skipað ungmennum að beita ofbeldi, stunda sjálfsskaða og taka þátt í kynferðislegum athöfnum. Brotin hafi yfirleitt verið tekin upp og myndskeiðum í kjölfarið dreift á netinu, að því er fram kemur í frétt sænska ríkisútvarpsins SVT. Hann neitar allri sök.

Ekki sú eina á landinu

Katrín segist hafa fengið lítil viðbrögð við stuðningshópnum enn sem komið er. Fólk hafi vissulega sýnt honum áhuga en ekkert þeirra haft reynslu af 764.

„Við erum tvær hérna á Íslandi sem ég veit um sem eigum börn sem hafa lent í þessu og markmiðið var í rauninni að reyna að finna hvort það væru einhverjir fleiri.“

Hún upplifði blendnar tilfinningar þegar hún komst að því að annað íslenskt barn hefði lent í klóm netofbeldishópsins. Á meðan það væri viss léttir að þau væru ekki ein á Íslandi hafi verið sárt að hugsa til þess að önnur fjölskylda hafi gengið í gegnum svipaða eldraun.

Lenti í hópnum á Discord

Guðbjörg lenti í ofbeldishópnum 764 á samskiptamiðlinum Discord þar sem hún hafði átti í samskiptum við aðra spilara tölvuleiksins Roblox. Á Discord kynntist hún fólki sem hún taldi til vina sinna en átti síðar eftir að draga hana inn í myrkan vef 764.

Ofbeldismenn hafa meðal annars notað spjallmiðlana Discord og Telegram til að ná til ungmenna.Unsplash/appshunter.io

Hún var þrettán ára þegar hún komst í kynni við hópinn en um ári síðar fór hún að fá hótanir, þar sem henni var meðal annars skipað að skaða sjálfa sig og gæludýrin sín og deila nektarmyndum. Guðbjörg segir hótanirnar hafa verið settar fram af „háttsettum“ körlum innan hópsins og 764 stýrt lífi hennar í rúm þrjú ár.

Á tímabili horfðu allt að hundrað manns á hana í beinu netstreymi, niðurlægðu hana og hvöttu til sjálfsskaða og ofbeldisverka. 

Foreldrar þurfi að hafa varann á

Katrín segir fólk allt of værukært þegar kemur að samfélagsmiðla- og tölvuleikjanotkun ungmenna.

„Það er verið að herja á börn inni á Roblox og Discord,“ bætir Katrín við og vísar til vinsæls tölvuleikjaheims og samskiptamiðils.

Hún biðlar til foreldra að fylgjast betur með því hvað börn þeirra eru að gera á netinu og í tækjum sínum. Í einhverjum tilvikum sé hægt að takmarka samskipti þeirra við ókunnuga en stundum geti stillingar veitt falskt öryggi. 

Roblox er gríðarlega vinsæll leikur meðal ungmenna sem gerir þeim meðal annars kleift að eiga í samskiptum við ókunnuga.Unsplash/Oberon Copeland

Katrín segir að í Roblox sé hægt að koma í veg fyrir að börn spjalli við aðra notendur en í öðrum tölvuleikjum geti notendur stundum átt samskipti við ókunnuga þrátt fyrir að slökkt sé á spjallvirkni.

„Það er verið að leita að krökkum sem eru í félagslega slæmri stöðu. Það er mjög algengt að börn sem hafa lent í þessu séu með ADHD, einhverfu eða eitthvað svoleiðis.“

Fylgist með réttarhöldum yfir brotamanninum

Katrín hefur fylgst vel með rannsóknum á meðlimum 764-hópsins en í ljósi alþjóðlegs eðlis hans eru þær í höndum erlendra lögregluyfirvalda frekar en íslenskra. 764 er sagt vera hluti af neti svipaðra hópa sem ganga undir ólíkum nöfnum og eru sjaldan með útnefnda leiðtoga. 

Dæmi eru um að nýir hópar spretti skyndilega upp og séu fljótir að hverfa eða breyta um heiti. Þeir fylgi jafnan svipaðri hugmyndafræði og 764-hópurinn og forveri hans CVLT.

Bandaríska alríkislögreglan hefur 764 til rannsóknar. AP/Cliff Owen

Bandaríska dómsmálaráðuneytið tilkynnti í síðustu viku að hinn 26 ára gamli Shawn Krishendat Premsook frá Flórída hefði játað sekt sína í málum tengdum 764 og ætti yfir höfði sér minnst fimm ára fangelsi. Hann játaði að hafa dreift barnaníðsefni og haft slíkt í vörslu sinni.

Að sögn saksóknara var Premsook meðlimur í 764 og öðrum hópum af svipuðum meiði og tók þátt í því að kúga ólögráða einstaklinga til að stunda sjálfsskaða. 

Fleiri hafa verið handteknir í tengslum við netofbeldishópana og lýstu ríkissaksóknarar í Washington D.C. því yfir í apríl í fyrra að Leonidas Varagiannis og Prasan Nepal, meintir leiðtogar 764, hefðu verið ákærðir og handteknir. Þeir voru aðeins 21 og 20 ára gamlir. Þá var annar leiðtogi hópsins sagður hafa játað brot sín í desember. 

Breskir ríkissaksóknarar gáfu út fyrir helgi að hinn átján ára Elijah Palmer hafi verið dæmdur í 4 ára og 9 mánaða fangelsi fyrir að hafa hvatt ungt fórnarlamb til að skaða sig alvarlega og taka kynferðislegar myndir af sér sem hluti af langvarandi netáreitni. Hann gekkst við brotunum og er sagður tengdur 764-hópnum. Hann játaði einnig að hafa haft undir höndum óviðeigandi myndefni.

„Palmer kúgaði fórnarlamb sitt, hafði í hótunum og krafðist þess að hún tæki þátt í sífellt meira niðurlægjandi athöfnum til að þjóna sjálfum sér og byggja upp orðspor sitt meðal annarra meðlima 764-hópsins,“ sagði Caroline Deacon ríkissaksóknari.

Í Kanada má finna 764 á lista með Al Qaida.Skjáskot

Í lok síðasta árs var 764 skilgreint sem hryðjuverkasamtök af stjórnvöldum í Kanada. 

Á grundvelli þessa var Jeffrey Roussel, 26 ára Quebec-búi, ákærður í apríl fyrir þátttöku í starfsemi hryðjuverkasamtaka með því að birta og dreifa ofbeldisfullu og óhugnanlegu efni með það að markmiði að fá fleiri til liðs við hópinn. Að sögn ákæruvaldsins átti þetta sér stað í spjallhópi á samskiptamiðlinum Telegram.

Hvetja foreldra til að vera vakandi fyrir ákveðnum merkjum 

Europol varaði í fyrra við aukinni útbreiðslu hópa á netinu sem eru tileinkaðir alvarlegri og ofbeldisfullri barnamisnotkun og greindi frá því hvaða hegðunarmerkjum forráðamenn ættu að hafa augun opin fyrir. 

Þeirra á meðal eru að börn einangri sig, sýni skaðlegu efni áhuga og reyni að fela líkamleg merki um sjálfsskaða. Þá gaf FBI út álíka tilmæli til foreldra í febrúar. 

Í nóvember hvöttu barnavernd og lögregla í Vestmannaeyjum foreldra til að fara yfir samfélagsmiðlanotkun barna sinna og fylgjast vel með líðan þeirra. Lög­regluembættið skoðaði þá mál tengt 764-glæpa­hópnum.

Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is.

Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn.

Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. 

Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is.

Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is.

Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn.

#biður #fjölskyldan #foreldra #fylgjast #sárum

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262900110d/fjolskyldan-i-sarum-og-bidur-foreldra-um-ad-fylgjast-med-netnotkun-barna

📰 Aðrar fréttir

Segir stjórn­endur Ung­frú Ís­land hafa gert upp á milli kepp­enda - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Segir stjórn­endur Ung­frú Ís­land hafa gert upp á milli kepp­enda - Vísir
Erla Talía Einarsdóttir var átján ára þegar hún keppti í Ungfrú Ísland árið 2025. Núna ári síðar hefur hún birt TikTok-myndband um reynslu sína af kep...
„Í sumum nágrannaríkjunum eru ráðherrar reknir og ráðnir eins og au-pair stúlkur“
📅 25.09.2026 👁️ 0
„Í sumum nágrannaríkjunum eru ráðherrar reknir og ráðnir eins og au-pair stúlkur“
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að upphrópanir gagnvart Flokki fólksins, Ingu Sæland og Ragnari Þór Ingólfssyni vegna brotthvarfs Guðmund...
Sjald­gæfur gestur í Eyjum - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Sjald­gæfur gestur í Eyjum - Vísir
Tígull greinir frá komu þessa sjaldgæfa gests. Eyjamiðillinn ræddi við Yann Kolbeinsson fuglafræðing sem sagði komum kúhegra til landsins hafa fjölgað...
Sekt fyrir að henda rusli á götur Tókýó
📅 25.09.2026 👁️ 0
Sekt fyrir að henda rusli á götur Tókýó
Borgaryfirvöld í Tókýó, höfuðborg Japans, hafa til skoðunar að grípa til hertra aðgerða til að halda borginni hreinni. Borgarstjórinn Yuriko Koike til...
Forseti býður framhaldsskólanemum til samtals
📅 25.09.2026 👁️ 0
Forseti býður framhaldsskólanemum til samtals
Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. S...
Fimm ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun með járnröri
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fimm ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun með járnröri
Fimm menn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás og hótanir gegn manni í ágúst 2023. Meðal þess sem fimmmenningunum er gef...
Sjaldgæfur flækingur sást í Vestmannaeyjum
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sjaldgæfur flækingur sást í Vestmannaeyjum
Kúhegri sást í Vestmannaeyjum í dag. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar sem vitað er til að hafi sést þar.Tígull greindi fyrst frá.„Þeir eru fremur sja...
Leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Mamdani - „Kannski ætti það að kaupa sambærilegt magn“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Mamdani - „Kannski ætti það að kaupa sambærilegt magn“
Gunnar Smári Egilsson fjölmiðlamaður leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Zohran Mamdani borgarstjóra í New York og gefi fátækum frímiða í Þjóða...
Zelensky says Russia has widened attacks to hit Ukraine's data centres and internet providers
📅 25.09.2026 👁️ 0
Zelensky says Russia has widened attacks to hit Ukraine's data centres and internet providers
Such strikes aim to disrupt "people's ability to stay connected, study, work", says Ukraine's president.
Bað um á­lit lög­reglu á gæðum fíkni­efna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Bað um á­lit lög­reglu á gæðum fíkni­efna - Vísir
Að sögn lögreglu var maðurinn hræddur um að sér hefðu verið seld léleg fíknefni. Vildi hann fá lögreglu til að komast til botns í þessu. Ekki kemur fr...
Stingur upp á Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem fundarstað
📅 25.09.2026 👁️ 1
Stingur upp á Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem fundarstað
Bandarísk stjórnvöld hafa stungið upp á því að sendinefndir Rússlands og Úkraínu ræði saman í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á næstunni. Þetta tilky...
Skriða þveraði veginn í Árneshrepp - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Skriða þveraði veginn í Árneshrepp - Vísir
Hreppurinn greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum þar sem birtar eru sömuleiðis myndir af umfangi skriðunnar sem þveraði veginn. „Það er áfram m...
Breið­holts­braut lokuð allan morgun­daginn - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Breið­holts­braut lokuð allan morgun­daginn - Vísir
Lokunin stendur yfir frá klukkan fimm að morgni og til klukkan 22 um kvöldið. Brautin verður lokuð við Þingtorg og Selásbraut og við nýju gatnamótin o...
Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
📅 25.09.2026 👁️ 2
Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
Rangfeðraður maður telur sig vita hver raunverulegur faðir hans er. Sá maður er þó látinn sem flækir málin. Sá rangfeðraði hefur höfðað mál til að fá ...
Breiðholtsbraut lokað á morgun
📅 25.09.2026 👁️ 2
Breiðholtsbraut lokað á morgun
Breiðholtsbraut í Reykjavík verður lokuð vegna malbikunar milli klukkan 5 og 22 á morgun, laugardag.Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar.Lokað...
U2 celebrate 50th anniversary at the school where they formed
📅 25.09.2026 👁️ 1
U2 celebrate 50th anniversary at the school where they formed
The rock band go back to their roots, playing a gig in the Dublin playground where they first met.
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
📅 25.09.2026 👁️ 2
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Einn aðalleikari þáttanna sást spóka sig í miðborg Reykjavíkur á dögunum.Sa...
Ný sería af The Four Seasons tekin upp á Íslandi: „Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Ný sería af The Four Seasons tekin upp á Íslandi: „Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu“
Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Framkvæmdastjóri True North segir yfir 100 manns á vegum fyrirtækisins koma...
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
Birt voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið í samráðsgátt fyrr í dag. Lögin eru byggð á tillögum úr fjölmiðlapakka sem ...
Olíuleki á Seltjarnarnesi
📅 25.09.2026 👁️ 2
Olíuleki á Seltjarnarnesi
Mikil olía lak á Lindarbraut og Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Vegfarendur voru varaði við hálku vegna þessa.María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjó...
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
📅 25.09.2026 👁️ 2
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum RÚV má fækka út­varps­stöðv­um verði ný drög að frum­varpi um RÚV sam­þykkt. Þá er stefnt...
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
Guðmundur Ingi fór ítarlega yfir aðdraganda og eftirmál afsagnar sinnar úr embætti mennta- og barnamálaráðherra í Reykjavík síðdegis. Guðmundur sagði ...
Húsbíll fauk út af - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Húsbíll fauk út af - Vísir
Þetta segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, í samtali við Vísi. Unnið hafi verið að því í dag að fjarlægja bílinn af ve...
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
„Svarið er nei,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær, spurð hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að Guðmundur...
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
📅 25.09.2026 👁️ 2
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
The prime minister told the BBC an early poll would throw the country into a "backward-looking process".
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. Þó fyrrum þingmaður flokks fólksins sé svekktur yfir því að ...
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
Fimm karlmenn eru ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir vegna atvika sem áttu sér stað í ágúst árið 202...
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir umfjöllun RÚV um trans teymi barna og unglinga á Landspítala hafa augljósan pólitískan tilgang og það sé ...
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakan...
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaðu...
Why is the Pope in France?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Why is the Pope in France?
The BBC's Hugh Schofield looks at why the visit is met with enthusiasm the Church attributes to growing spirituality among the French.
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
📅 25.09.2026 👁️ 2
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
„Ef ég væri Pamela í Dallas“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Svika­sög­ur eft­ir Maríu Reyn­dal, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Það er ætíð f...
Aflátsbréf frá Brussel
📅 25.09.2026 👁️ 2
Aflátsbréf frá Brussel
Aflátsbréf frá Brussel Fréttin25. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á miðöldum gátu syndar...
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35? Fréttin25. september 2026InnlendarLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar. Ríkisútvarpið er engin venj...
Afstaða Íslands skýr
📅 25.09.2026 👁️ 2
Afstaða Íslands skýr
Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé miki...
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
📅 25.09.2026 👁️ 2
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
Boðað var til samstöðufundar fyrir fólk á flótta á Austurvelli í dag. Páll Óskar Hjálmtýsson flutti tvö lög ásamt Ljóta kórnum, Háskólakórnum og Kór H...
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir

Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
📅 25.09.2026 👁️ 2
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
The star's concerts in Massachusetts on Friday and Saturday are cancelled after severe weather warnings.
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 2
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á...
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
📅 25.09.2026 👁️ 2
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
A Jet2 passenger plane was evacuated at Tenerife South Airport today after a passenger reportedly made a bomb threat, triggering a precautionary secur...
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að það sé hernaður í gangi gegn íslensku tungumáli. Í færslu sem lýsa má sem eldræðu segir Bubbi að það þurfi a...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þes...
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
Trump sagðist einnig, samkvæmt AP fréttaveitunni, vilja sýna Xi gömul skjöl sem fjalla um samskipti Bandaríkjanna og Kína. Búist var við því að Xi myn...
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
Miðvikudaginn 23. september framkvæmdi Lögreglan á Vestfjörðum húsleit í heimahúsi í Bolungarvík. Húsleitin var framkvæmd vegna grunsemda sem höfðu va...
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
📅 25.09.2026 👁️ 2
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
Ríkissáttasemjari segir fund Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa gengið ágætlega. Samninganefndirnar funduðu í fyrsta sinn frá því að verkfall...
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
Football finance expert Kieran Maguire says the potential sanctions for Manchester City will be 'significant' after the sources told BBC Sport that th...
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
📅 25.09.2026 👁️ 2
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar Kanadísk-haí­tíski rit­höf­und­ur­inn Thelyson Or­elien neit­ar að hafa not...
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti þetta við Vísi í dag. Hún fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum þremur. „Rannsókn málsins mi...
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
📅 25.09.2026 👁️ 2
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
Þrír þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti hafa verið látnir lausir.Þetta kemur ...