Bandaríkin og Íran hafa sammælst um áætlun um hvernig þjóðirnar ætla að ná endanlegu friðarsamkomulagi til að binda enda á stríð í Mið-Austurlöndum.
Milligöngumenn frá Pakistan og Katar greindu frá þessu í sameiginlegri tilkynningu í nótt. Stefnt er að því að lokasamkomulag um frið verði frágengið innan 60 daga. Formlegar viðræður geta því hafist, segir í tilkynningunni.
Ætla að tryggja frið í Líbanon
Utanríkisráðherra Íran Abbas Araghch, sagði í færslu á X að mikill árangur hefði náðst í viðræðunum við Bandaríkin. Með milligöngu Pakistan og Katar ætla Bandaríkin, Íran og Líbanon að tryggja að bundinn verði endir á hernaðaraðgerðir í Líbanon.
Araghchi sagði jafnframt að banni við útflutningi Írana á olíu og jarðefnaeldsneyti væri aflétt. Losað verði um nokkrar frystar eignir og umfangsmikil endurreisnar- og þróunaráætlun fyrir Íran lægi fyrir.
Viðræður halda áfram milli Íran og Bandaríkjanna í þessari viku í Bürgenstock í Sviss.
Hezbollah ætlar að verjast hugsanlegum árásum
Samkvæmt breska ríkisútvarpinu hefur dregið úr árásum í Líbanon. Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, segir þó að ísraelski herinn verði áfram í Suður-Líbanon eins lengi og þörf sé á að vernda norður Ísrael.
Leiðtogi Hezbollah-samtakanna, Naim Qassem, er andsnúinn hvers kyns viðveru Ísraelshers í Suður-Líbanon og segir að Hezbollah ætli að verjast árásum ef til þeirra kemur.