Borgin vill ekki hjólabyggð og leggur til einkaframtakið
Starfshópur Reykjavíkurborgar segir það lagalega flókið og kostnaðarsamt að bjóða upp á þjónustu við íbúa í hjólhýsum á Sævarhöfða. Þá sé mögulega heppilegra að einkaframtakið taki við boltanum.
Starfshópur Reykjavíkurborgar telur að ýmislegt í núverandi lagaumhverfi geri það í raun ólöglegt að koma upp svæði fyrir hjólhýsi með varanlega búsetu í huga. Þetta kemur fram í umsögn frá umhverfis- og skipulagssviði (USK) vegna afnotasamnings um borgarland í Gufunesi undir hjólabyggð eins og það er kallað. Ein af niðurstöðum starfshóps um málið er að mögulega væri heppilegra ef einkaframtakið byði upp á svæði með þjónustu fyrir þennan hóp. Kostnaður vegna byggðarinnar yrði líklega á bilinu 50 til 100 milljónir fyrir útsvarsgreiðendur verði samningurinn efndur við hjólabúa.
Nokkuð var tekist á um hjólhýsabyggð á Sævarhöfða á fundi borgarráðs á fimmtudag, eftir að málið var fært úr trúnaðarbók borgarráðs. Lagt er til að leigusamningi við hjólabúa verði sagt upp á Gufunesi í ljósi umsagnarinnar, og er það borgarstjóri sem lagði slíkt til á fundi borgarstjórnar.
Minnihlutinn er ósáttur og gagnrýnir áform borgarinnar í bókun við málið, þar sem sagði: „Hópur fólks …