Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir íslenska kúabændur ekki munu eiga neina möguleika á að keppa við þau stórfyrirtæki sem séu að verða til í ríkjum Evrópusambandsins.
Þá sé hæpið að halda því fram að matvælaverð muni lækka um tugi prósenta við inngöngu í ESB, eins og haldið hafi verið fram í umræðunni.
„Það eru hins vegar allar líkur á að birtingarmynd inngöngu verði miklir erfiðleikar fyrir íslenskan landbúnað og að innlend framleiðsla gefi allverulega og hratt eftir og að þá verði maturinn fluttur inn annars staðar frá.“
Lesa má nánar um málið á bls.10 í Morgunblaðinu í dag