Átján ára marokkóskur ríkisborgari hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa barið og skorið 75 ára konu til bana með glerflösku þegar hún var úti að ganga með hundinn sinn í bænum Soses í Lleida héraði í Katalóníu.
Konan hét Dolors Agustí og fór að heiman um klukkan 19.45 á laugardagskvöld til að ganga með hundinn sinn í útjaðri bæjarins.
Þegar hundurinn sneri einn heim nokkrum klukkustundum síðar urðu ættingjar hennar og nágrannar áhyggjufullir og hófu leit að henni.
Líkiðt falið á maísakri
Lík Agustí fannst síðar um kvöldið í maísakri, í um 200 metra fjarlægð frá miðbæ Soses.
Á líkinu voru fjölmargir skurðir og maráverkar. Rannsakendur telja að árásarmaðurinn hafi notað glerflösku til að veita henni banvæna áverka.
Brotin flaska fannst á vettvangi og hafði konan meðal annars hlotið banvænan skurð á hálsi. Talið er að lík hennar hafi verið fært til og falið í maísakrinum eftir árásina.
Lögreglan í Katalóníu hóf þegar rannsókn á morðinu.
Handtekinn tveimur dögum síðar
Hinn átján ára grunaði var handtekinn í Soses á mánudag, tveimur dögum eftir að konan var myrt.
Lögreglan hefur ekki staðfest hvort hann eigi sakaferil að baki, upplýst um möguleg tengsl hans við Agustí eða hvað talið er hafa verið tilefni árásarinnar.
Þriggja daga sorg lýst yfir
Bæjaryfirvöld í Soses lýstu yfir þriggja daga opinberri sorg vegna morðsins.
Íbúar Soses og nærliggjandi bæja komu einnig saman á torgi bæjarins og héldu mínútu þögn til minningar um Agustí.