Ástríður prinsessa var borin til grafar í dag, tveimur vikum á eftir bróður sínum Haraldi heitnum Noregskonungi. Hún lést 11. september 94 ára að aldri.
Ástríður lést aðeins tveimur dögum eftir að hafa fylgt yngri bróður sínum hinsta spölinn. Hún þjónaði fjórum Noregskonungum. Fyrst afa sínum Hákoni sjöunda VII., svo Ólafi fimmta V. föður sínum, þá Haraldi bróður sínum og nú síðast bróðursyni sínum Hákoni VIII.
Ástríður var við störf nánast fram til dánardags og var verndari fjölmargra samtaka. Hún giftist Johan Martin Ferner 1961 þrátt fyrir mótbárur norsku kirkjunnar. Ferner var fráskilinn. Þau eignuðust fimm börn.
Aðeins 22 ára gömul fyllti hún í skarð móður sinnar, Mörtu krónprinsessu, sem lést 1954.
Ólafur V Noregskonungur stóð þá eftir sem ekkill og varð Ástríður því mun sýnilegri opinberlega en ella í sínum störfum. Fyrir það er hennar sérstaklega minnst.
„Við lærðum margt af henni og hún var óhrædd við að segja hug sinn. Fráfall hennar er okkur mikill missir,“ sagði Hákon Noregskonungur við andlát hennar.
Hákon konungur bar kistu föðursystur sinnar út úr Ris kirkjunni í Ósló í. Kistan var sveipuð norska fánanum.