Í byrjun síðustu viku sögðu kýpverskir fjölmiðlar frá eftirlýsingunni. Fram kom að Ari væri 53 ára Íslendingur, búsettur í Larnaka. Hann væri talinn geta hjálpað lögreglunni þar í landi við rannsókn alvarlegum refisverðum brotum, sem þó voru ótilgreind.
Síðastliðinn föstudag sagði lögreglan svo frá því að lögreglunni á Kýpur hafi tekist að finna Ara og handtaka hann.
Hefur hlotið dóm á Íslandi
Ari hlaut þriggja ára og níu mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2022 fyrir kynferðisbrot, stórfelldar ærumeiðingar og stórfelld brot í nánu sambandi sem beindust gegn einni og sömu konunni.
DV fjallaði um málið á sínum tíma, þar sem hann var kallaður „Ari eltihrellir“, en svo virðist sem dómurinn sé ekki lengur aðgengilegur á vef dómstólanna.
Í umfjöllun DV kom fram að dómurinn yfir honum teldi rúmlega sextíu blaðsíður og að hann hafi verið sakfelldur í 136 liðum.
Umrædd brot framdi hann á árunum 2017 til 2019, en honum var gefið að sök að senda á annað hundrað tölvupósta með kynferðislegum ljósmyndum af konunni til vina og kunningja hennar, sem og á fjölmiðla og víðar. Jafnframt mun hann hafa birt kynferðisleg myndskeið af henni á vefsíðum, og sent henni ærumeiðandi skilaboð.