Þetta staðfestir Sævar Guðmundsson aðalvarðstjóri á lögreglustöð 2 en hann segir fleiri hafa verið við lögreglustöðina á Hverfisgötu þegar málið átti sér stað á áttunda tímanum í gærkvöld. Voru nokkrir yfirheyrðir og sem fyrr segir tveir handteknir og vistaðir í fangaklefa.
Sævar segir áflogin hafa verið „stimpingar sem undu upp á sig“ og í rauninni ekki mjög alvarleg. Brotaþoli kom í afgreiðsluna á lögreglustöðinni með skurð á fingri og rifin föt en árásarmaður hafði dregið upp hníf eftir að handalögmál brutust út.
Snerist ósættið sem fyrr segir um skuld eða þjófnað sem var óuppgerður mannanna á milli og verða þeir yfirheyrðir aftur áður en málinu verður lokað, staðfestir Sævar.