Umfangsmikil leit stendur yfir í Fukushima í Japan að skógarbirni sem hefur í vikunni ráðist á fólk. Hann hefur sært fjóra, þar af einn alvarlega. Björninn hefur verið skotinn með deyfilyfi en það hafði engin áhrif. Honum tókst að sleppa úr haldi með því að opna sjálfur glugga og hann hefur skrúfað frá krana með loppunum og fengið sér vatn að drekka.
Björninn sást á upptöku eftirlitsmyndavélar á miðvikudag ráðast á mann á bílastæði fyrirtækis. Það bjargaði manninum að bílstjóri sá atlöguna og keyrði hratt að og hræddi björninn í burtu. Þá hljóp björninn inn í skrifstofubyggingu og réðst á annan mann og fór eftir það á flótta á ný.
Eftir árásina á bílastæðinu, sem náðist á eftirlitsmyndavél, fór björninn inn í verksmiðju þar sem sást til hans skrúfa frá krana með loppunum. Yfirvöld settu upp gildrur við inngang verksmiðjunnar og sendu dýraeftirlitsmann á vettvang vopnaða byssum með deyfilyfjum.
Lögreglumaður á vakt sá björninn klifra yfir hlið á miðvikudagskvöld. Síðar kom í ljós að honum hafði tekist að opna glugga í verksmiðjunni, þar sem honum var haldið, og sleppa þannig út. Klórför eftir klær bjarnarins eru sögð hafa sést við gluggann.
Yfirvöld í Fukushimaborg greindu frá því í gær að björninn hafi verið skotinn með deyfilyfi en að óljóst væri hvers vegna þau hafi ekki haft tilætluð áhrif. „Björninn sást skrúfa frá krana til að drekka vatn og virðist hafa opnað glugga sjálfur,“ sagði borgarstjórinn Yuki Baba á upplýsingafundi í gær. „Ég tel þetta vera einkar greindan björn,“ sagði borgarstjórinn að því er fram kemur í umfjöllun The Guardian.
Ráðist hefur verið í umfangsmikla leit að birninum sem enn er laus. Í leitarhópnum eru lögreglumenn og veiðimenn og drónar eru nýttir við leitina. Skólum var lokað í gær vegna bjarnarins.
Árásir bjarna hafa færst í aukana síðustu ár í Japan. Í fyrra drápu þeir 13 manns. Alls voru árásirnar 238 í fyrra. Talið er að ástæðurnar megi rekja til fækkunar íbúa á landsbyggðinni og að vegna breytinga á fæðuframboði bjarna vegna loftslagsbreytinga sæki þeir meira í byggð.