Hin fjörutíu og þriggja ára Hathaway greindi frá ólettunni með myndbandi á Instagram-síðu sinni en í frétt Vouge kemur fram að hún hafi nýlega sést njóta frís í sólríku Saint-Tropez, klædd í rjómalitaða heklaða yfirflík yfir óléttukúluna, sem var úr samstarfi stílistans hennar, Erin Walsh, við tískuhúsið La Ligne.
Fyrir á hún tvo drengi með Shulman, þá Jonathan, 10 ára, og Jack, sex ára, en hjónin hafa haldið sonum sínum frá sviðsljósinu. Shulman og Hathaway hafa verið gift frá árinu 2012. Er hún einna helst þekkt fyrir kvikmyndirnar um Prada-djöfulinn og leik sinn sem Catwoman í kvikmyndinni The Dark Knight Rises.