Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, fékk ótilgreindar leigutekjur af framleigu þriggja sumarhúsa á Royal Lodge-landareigninni sem er í eigu bresku konungsfjölskyldunnar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bresku Ríkisendurskoðunarinnar (NAO).
Í skýrslunni kemur jafnframt fram að Karl III Bretakonungur greiði leigu fyrir húsnæði dætra Andrews, prinsessnanna Beatrice og Eugenie, í konungshöllum í London, þrátt fyrir að þær gegni ekki opinberum störfum fyrir konungsfjölskylduna.
Samkvæmt frétt BBC er þetta fyrsta úttektin sem framkvæmd er á húsnæði konungsfjölskyldunnar í tvo áratugi. Þar kemur fram að Andrew, fjölskylda hans og starfsfólk hafi haft aðgang að alls tólf eignum í eigu konungshirðarinnar.
Andrew tók við leigusamningi fyrir Royal Lodge eftir að hafa þegar greitt 7,5 milljónir punda í endurbætur á eigninni. Fyrir vikið þurfti hann ekki að greiða hefðbundna leigu fyrir húsnæðið.
Leiga greidd úr einkasjóði konungs
Skýrslan sýnir að Eugenie prinsessa hefur aðgang að húsnæði í Kensington-höll og Beatrice prinsessa að húsnæði í St. James-höll. Leiga fyrir eignirnar er greidd úr einkasjóði konungs, en ekki af prinsessunum sjálfum.
Viðhald hallanna er hins vegar fjármagnað með opinberu fé í gegnum svonefndan Sovereign Grant, árlegt framlag ríkisins til konungsfjölskyldunnar.
Norman Baker, fyrrverandi ráðherra í bresku ríkisstjórninni, hefur gagnrýnt fyrirkomulagið harðlega eftir útgáfu skýrslunnar og segir það óásættanlegt að niðurgreiða lúxushúsnæði með þessum hætti.
Talsmaður konungshallarinnar hafnaði gagnrýninni og sagði að leigugreiðslur úr einkasjóði konungs stæðu undir öllum kostnaði sem tengdist eignunum og því félli enginn aukinn kostnaður á ríkissjóð eða Sovereign Grant.
Ekki kemur fram í skýrslunni hversu há leigan er, en hún er sögð nema um 60% af markaðsleigu.
Framleigði þrenn sumarhús
Þrátt fyrir að Andrew hafi yfirgefið Royal Lodge fyrr á þessu ári og flutt til Sandringham í Norfolk er hann enn með gildan leigusamning um eignina út október 2026.
Auk aðalhússins voru átta aðrar eignir á svæðinu og heimilaði leigusamningurinn framleigu þriggja sumarhúsa. Andrew nýtti sér þá heimild fram til apríl á þessu ári.
Skýrslan greinir ekki frá því hversu miklar tekjur hann hafði af útleigunni. Heimildarmenn innan hallarinnar segja þó að eignirnar hafi einkum verið leigðar til starfsfólks eða fyrrverandi starfsfólks og að tekjurnar hafi að mestu farið í rekstur eignanna.
Ríkisendurskoðunin bendir ekki á að Andrew hafi brotið reglur eða gerst sekur um misferli.
Þingnefnd tekur málið til skoðunar
Úttektin var unnin í kjölfar deilna og gagnrýni sem beinst hefur að Andrew undanfarin ár. Gert er ráð fyrir að fjárlaganefnd breska þingsins taki niðurstöður hennar til frekari skoðunar.
Í skýrslunni kemur einnig fram að Crown Estate hafi greitt tæplega 400 þúsund pund fyrir endurbætur á Forest Lodge í Windsor áður en Vilhjálmur Bretaprins og Katrín prinsessa fluttu inn.
Ellefu starfandi meðlimir konungsfjölskyldunnar njóta húsnæðis í konungshöllunum án þess að greiða leigu, gegn því að sinna opinberum skyldum fyrir hönd konungsveldisins.
Lee Summerfield, framkvæmdastjóri NAO, sagði tilgang skýrslunnar vera að leggja fram staðreyndir um eignafyrirkomulag konungsfjölskyldunnar en ekki að leggja mat á hagkvæmni þess.
Talsmaður Buckinghamhallar sagði að konungshirðin fagnaði skýrslunni og vonaðist til að hún myndi varpa skýrara ljósi á fyrirkomulag og umsýslu konunglegra eigna.
