Alþingi setur lög á verkfall flugvirkja

Alþingi setur lög á verkfall flugvirkja

Alþingi setur lög á verkfall flugvirkja

„Ríkisstjórnin afgreiddi á fundi sínum í morgun frumvarp um frestun verkfallsins. Ég mun leggja fram frumvarp seinna í dag,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

Hann segir að rætt hafi verið við formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, og þingflokksformann Miðflokksins, um frumvarpið.

Hann segist ekki hafa rætt sjálfur við þau heldur hafi forsætisráðherra gert það. Og að þau yrðu að tala fyrir sjálf sig um þetta mál.

Hann segir samstöðu í ríkisstjórn um málið.

Elise og Angelie segjast vilja komast aftur heim til Frakklands. Þær eru á leiðinni til Parísar þaðan sem þær taka lest heim til sín. Þær segjast hafa fengið eina tilkynningu um verkfallið um að hugsanlega þyrftu þær að breyta flugi sínu sjálfar. Þær hafi ekki gert það vegna þess að þær bjuggust við því að það yrði flogið. Þær bíði nú fregna um annað flug og upplýsinga.

Ríkisstjórnin samþykkti einróma á fundi sínum í morgun að setja lög á verkfall flugvirkja. Alþingi verður kallað saman síðar í dag til að samþykkja lögin. Rætt hefur verið við formenn stjórnarandstöðuflokkanna og þeir styðja lagasetninguna.

Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir ekki fleira fólk á flugvellinum en á venjulegum miðvikudagsmorgni. Þangað sé mætt fólk sem ætti flug með Icelandair, sem sé þar að leita upplýsinga og starfsfólk Isavia aðstoði með það eftir bestu getu. Isavia hafi kallað út aukamannskap í morgun.

„Mér skilst reyndar að upplýsingagjöfin hjá Icelandair í aðdraganda verkfallsins hafi verið mjög öflug þannig að farþegar hafa vitað hvað stefndi

30 flugferðir með öðrum flugfélögum en Icelandair eru á áætlun frá Keflavíkurflugvelli í dag.

„Sá hópur er akkúrat núna að koma í hinn svokallaða mið-morgunbanka á leið í flug.“

Guðjón hvetur farþega til að fylgjast vel með upplýsingum á vef Isavia.

„Og við hvetjum fólk í raun til að koma ekki upp á völl nema það liggi fyrir að flugið sé að fara.“

Það er talsverð örtröð á Keflavíkurflugvelli. Starfsfólk Icelandair dreifði snakki og vatni til farþega sem biðu í löngum röðum á flugvellinum í morgun.

Alþingi verður kallað saman síðdegis til að ræða og setja lög á verkfall flugvirkja hjá Icelandair. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Verkfallið hófst á miðnætti og felldi Icelandair niður allt morgunflug. Ríkisstjórnin kom saman til stutts fundar í morgun. Það er óvenjulegur fundartími þar sem stjórnin hittist alla jafna þriðjudaga og föstudaga.

Ríkisstjórnin hélt afar stuttan fund í morgun.

Fréttastofa hefur ekki fengið upplýsingar um hvert fundarefnið var. Þar sem það er mjög óvenjulegt að ríkisstjórnarfundir séu haldnir á miðvikudegi má þó velta því upp að flugvirkjaverkfall sem hófst í morgun kunni að hafa verið til umræðu.

Vangaveltur hafa verið uppi um hvort stjórnvöld myndu grípa inn í kjaradeiluna. Það er hægt að gera með lagasetningu.

Alla jafna eru ríkisstjórnarfundir haldnir á þriðjudögum og föstudögum.

Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir fréttamaður ræddi við Stacy Miller frá Wisconsin í Bandaríkjunum. Hún er á Keflavíkurflugvelli ásamt fjölskyldu sinni. Þau voru á leið til Skotlands eftir dvöl á Íslandi.

Hún var í röð við innritunarborð Icelandair að bíða eftir inneignarmiða fyrir hóteli. Hún kvaðst einnig ætla að hringja á hótelið sem þau voru á til að athuga hvort þau gætu haldið herberginu sínu, því þau ættu ekkert flug út.

Hér er lausleg þýðing á viðtalinu, sem er á ensku í spilaranum.

„Við vildum virkilega koma til Íslands og höfum átt frábæran tíma hér, en þetta er bara einn viðkomustaður í fjölskyldufríinu okkar. Nú sitjum við föst hér,“ segir Stacy.

„Og því miður, þó ég skilji það vel þar sem ég vinn sjálf í ferðaþjónustu, þá getur enginn raunverulega hjálpað okkur. Við erum því komin í mikið klúður vegna þess að það eru svo fá flugfélög sem fljúga til Íslands. Það er svolítið óhugnanlegt þegar maður hugsar um hversu mikið Ísland reiðir sig á ferðaþjónustu að ekki hafi verið gert meira til að leysa þetta verkfall. Það virðist sem þetta hefði verið svo auðvelt að leysa þegar litið er til þess trausts sem tapast, kostnaðarins sem fellur til og þess hversu mikla peninga var í raun verið að fara fram á.“

Stacy segir að það hafi verið tilkynning við bókunina um að verkfall gæti hugsanlega haft áhrif á ferðalagið.

„En hvað á maður að gera? Maður er búinn að bóka allar íbúðirnar sínar í tveimur löndum. Maður er kominn með bílaleigubíl. Maður er búinn að bóka ferðir. Þannig að maður verður bara að halda áfram og vona að það takist að leysa málið.“

Spurð hvernig upplýsingagjöf frá Icelandair hafi verið segir Stacy að hún vildi að hún væri meiri.

„En ég skil það að einhverju leyti, miðað við allt fólkið sem reynir að fá flug bókað. En þau hafa vitað lengi að þetta gæti gerst. Þau hefðu átt að vera að taka frá sæti allan tímann. Enginn veit hvenær við komumst héðan og þá vaknar líka spurningin hvað verður um íbúðirnar sem ég er með bókaðar við Loch Ness eða á Skye-eyju. Þetta eru því mikil vonbrigði.“

Ari Fossdal, stöðvarstjóri á Akureyrarflugvelli, og samstarfsfólk hans mætti til starfa í morgun eins og venjulega. Farþegarnir létu þó ekki sjá sig vegna verkfalls flugvirkja.

„Við erum náttúrulega með flug eftir hádegi á áætlun en dagurinn okkar fer í að svara símanum og aðstoða fólk eins og hægt er.“

Andrea Banki ætlaði að fljúga til Þýskalands í morgun en þegar fréttastofa rakst á hana sat Banki á gólfinu í flugstöðinni og beið upplýsinga.

„Ég bíð eftir að fljúga heim. Ég bíð eftir fluginu til Frankfurt.“

Banki vissi af verkfallinu en hafði ekki upplýst hana um að flugferðin hennar yrði felld niður.

„Enginn hefur sagt til um hvort ég komist heim eða ekki. Ég bíð svara frá Þyskalandi um hvort ég geti flogið heim í dag.“

Allt flug Icelandair í morgun var fellt niður vegna verkfallsins.

Til stóð að fljúga tvisvar milli Akureyrar og Reykjavíkur. Ekkert varð af þeim flugferðum frekar en öðrum.

Tómlegt var um að litast á Akureyrarflugvelli þegar Siguróli Magni Sigurðsson fréttamaður var þar á áttunda tímanum í morgun.

Icelandair hefur boðið flugfarþegum sem komu á Keflavíkurflugvöll rútuferðir til Reykjavíkur. Fólk er beðið um að halda fyrir í röðum meðan verið er að skipuleggja ferðirnar.

Nokkur fjöldi farþega kom á flugvöllinn og var ekki viss um hvaða áhrif verkfallið hefði.

„Við höfum ekkert verið boðaðir til viðræðna síðan um miðjan dag í gær,“ segir Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, sem er jafnframt formaður samninganefndar félagsins.

Óskar segir að menn hafi kastað hlutum sín á milli í gær til að leita leiða til að liðka fyrir lausn kjaradeilunnar. Hann segist hafa rætt við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, í síma í gærkvöldi.

„Það stendur ekki á okkur,“ segir Óskar um lausn kjaradeilunnar.

Fjöldi fólks er á Keflavíkurflugvelli, þar á meðal farþegar sem ætluðu að fljúga af landi brott með Icelandair í morgun. Þar er líka Ragnar Visage ljósmyndari sem tók þessar myndir í morgun

Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir fréttamaður og Víðir Hólm Ólafsson tökumaður mættu í Leifstöð klukkan sex. Hún segir að flugfarþegum hafi fjölgað mikið síðan þá en fólk sé samt rólegt að bíða eftir upplýsingum.

Enginn starfsmaður er við innritunarborðin á vegum Icelandair, og þar hefur mjög löng biðröð myndast af Icelandair flugfarþegum. Hólmfríður segir að viðmælendur hennar sýni þessu skilning, og vissu klárlega hvað var í vændum. Flugfarþegar bíði frekari upplýsinga.

Í kallkerfinu er verið að bjóða rútuferðir ókeypis í bæinn.

Góðan dag og velkomin í fréttavakt um verkfall flugvirkja hjá Icelandair og þau áhrif sem það hefur á millilandaflug og innanlandsflug Icelandair.

Flugfélagið felldi í gærkvöld niður allar flugferðir sem áttu að hefjast að morgni. Reynt verður að koma fólki á áfangastað með öðrum flugfélögum.

Hér flytjum við fréttir af því sem er að gerast á flugvöllum landsins og því hvort gangur komist á viðræður Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair um samning.

#alþingi #flugvirkja #lög #setur #verkfall


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-23-althingi-setur-log-a-verkfall-flugvirkja-487804

📰 Aðrar fréttir

20 ára deilur Stallone og Schwarzenegger voru „líf og dauði“
📅 24.09.2026 👁️ 0
20 ára deilur Stallone og Schwarzenegger voru „líf og dauði“
Sylvester Stallone hefur tjáið sig umfang deilunnar við Arnold Schwarzenegger, sem stóð yfir í meira en tvo áratugi. Einhverjir hafa talið að deilan h...
Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor - Vísir
Parið byrjaði að slá sér upp árið 2018 eftir að systir hans kynnti þau. Þau trúlofuðu sig árið 2021 og gengu í hjónaband í nóvember 2022. Þar tók hún ...
Allt kemur í ljós ef maður á geisla­drif - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Allt kemur í ljós ef maður á geisla­drif - Vísir
Þeir sem vilja taka tónlistina með sér heim þurfa hins vegar að eiga geislaspilara, því platan verður fyrst um sinn ekki aðgengileg á netinu. Það er g...
Telur kosninga­svik ekki hafa á­hrif á stjórnar­myndun - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Telur kosninga­svik ekki hafa á­hrif á stjórnar­myndun - Vísir
Sænska lögreglan rannsakar ásakanir um að fólki hafi verið borgað fyrir að greiða lítt þekktum frambjóðanda Vinstriflokksins atkvæði í persónukjöri í ...
County Durham breast cancer failure bosses to review 4,500 more cases
📅 24.09.2026 👁️ 0
County Durham breast cancer failure bosses to review 4,500 more cases
Hospital chiefs in County Durham agree to a review after failings including unnecessary surgeries.
Daniel Thomas arrested over video of dinghy slashing
📅 24.09.2026 👁️ 0
Daniel Thomas arrested over video of dinghy slashing
Police had been looking into footage appearing to show the man, also known as Danny Tommo, slashing at a boat in the English Channel with a knife.
Vopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgað mikið en mönnun stendur í stað
📅 24.09.2026 👁️ 0
Vopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgað mikið en mönnun stendur í stað
Fjöldi vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur sjöfaldast frá árinu 2014 og voru 424 í fyrra. Mönnun hefur hins vegar lítið breyst frá 2008....
Fjöldi vopnaútkalla sjöfaldaðist en mönnun stendur í stað
📅 24.09.2026 👁️ 0
Fjöldi vopnaútkalla sjöfaldaðist en mönnun stendur í stað
Fjöldi vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur sjöfaldast frá árinu 2014 og voru 424 í fyrra. Mönnun hefur hins vegar lítið breyst frá 2008....
Sjö­falt fleiri út­köll en sami fjöldi sérsveitarmanna - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Sjö­falt fleiri út­köll en sami fjöldi sérsveitarmanna - Vísir
Áætlaður kostnaður við að fylla upp í þessi tíu stöðugildi yrði þrjú til fjögur hundruð milljónir króna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri gr...
Veðurfræðingur um stöðuna í morgunsárið: „Nú er mjög djúp lægð að nálgast landið“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Veðurfræðingur um stöðuna í morgunsárið: „Nú er mjög djúp lægð að nálgast landið“
Gular viðvaranir taka gildi ein af annarri víða á landinu í dag og segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands að hyggilegt sé að tryggja lausamuni. Þá ...
Høiby skiptir um verj­endur - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Høiby skiptir um verj­endur - Vísir
VG greinir frá og ræðir við Alexander Greaker, annan verjandanna. Hann og Daniel Storrvik munu reyna að fá Høiby sýknaðan í febrúar þegar málin verða ...
Veturinn verði Rússum erfiður - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Veturinn verði Rússum erfiður - Vísir
Úkraínumenn hafa áhyggjur af því að Rússar ætli sér að gera enn og aftur árásir á orkuver, dreifikerfi og hita- og vatnsveitur Úkraínu í vetur. Þessar...
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt
📅 24.09.2026 👁️ 0
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og sjö aðr­ir þing­menn reyna nú aft­ur að af­nema erfða­fjárskatt. Þau v...
Rústir miðaldakirkju fundust á Grænlandi
📅 24.09.2026 👁️ 0
Rústir miðaldakirkju fundust á Grænlandi
Beinagrind sem fannst við fornleifauppgröft á Grænlandi í sumar staðfestir kenningar fræðimanna um að rústir sem eru þar nærri séu kirkjurústir. Ritza...
Djúp lægð nálgast landið og viðvaranir í gildi
📅 24.09.2026 👁️ 1
Djúp lægð nálgast landið og viðvaranir í gildi
Mjög djúp lægð nálgast landið úr suðri, segir í morgunpistli frá Veðurstofu Íslands.Það gengur í austan hvassviðri víða um land með morgninum og sunna...
Þú trúir ekki hvað lög­reglan gerði við sönnunar­gagnið - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Þú trúir ekki hvað lög­reglan gerði við sönnunar­gagnið - Vísir
„Sæll, ástin mín,“ sagði Mary, þegar Patrick steig inn um dyrnar. „Sæl, ástin,“ svarað hann á móti. Hún blandaði handa honum viskí. Hann þambaði það í...
Greiðir sér hálfan milljarð í arð - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Greiðir sér hálfan milljarð í arð - Vísir
Rekstrartekjur félagsins voru rúmar sex hundruð milljónir og rekstrargjöld 143 milljónir. Eftir skatta og önnur gjöld var hagnaðurinn 340 milljónir sa...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Íslenskt sjónarhorn á Grænlandssamninginn
📅 24.09.2026 👁️ 1
Þorsteinn Pálsson skrifar: Íslenskt sjónarhorn á Grænlandssamninginn
Grænlandssamningurinn er birtingarmynd nýs veruleika í alþjóðamálum. Fyrir Grænland skapar hann ró, að minnsta kosti um tíma. Hann er jafnframt sigur ...
„Eins og lítil falleg blóm sem eru að opna sig í moldviðri“
📅 24.09.2026 👁️ 1
„Eins og lítil falleg blóm sem eru að opna sig í moldviðri“
„Ég vil nú bara efast um að margt af þessu fólki sé í raun og veru með hag barnanna í huga,“ segir Ragnar Bjarnason, innkirtlalæknir barna, þegar hann...
Færri þunganir í á­hættu­hópi með nýrri tegund fósturskimunar - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Færri þunganir í á­hættu­hópi með nýrri tegund fósturskimunar - Vísir
Fósturerfðaskimunin, NIPT, verður í boði fyrir allar konur að lokinni 12 vikna skoðun. Í tólf vikna skoðun er meðgöngulengd metin og fjöldi fóstra ath...
Rigning og vindur - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Rigning og vindur - Vísir
Það dregur víða úr vindi seinnipartinn en gengur þá í norðaustan, fimmtán til 23 metrar á sekúndu á Vestfjörðum. Hiti fimm til ellefu stig.  „Suðvesta...
Bannaði Trump að banna fjöl­miðla - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Bannaði Trump að banna fjöl­miðla - Vísir
Um er að ræða miðlana CNN, MS NOW og Politico. Dómstóllinn gaf út tímabundinn lögbannsúrskurð sem þýðir að miðlarnir þrír skulu fá aðgangsheimildir sí...
Barnið ekki í við­eig­andi öryggis­búnaði - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Barnið ekki í við­eig­andi öryggis­búnaði - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefni embættisins frá klukkan fimm í gær til fimm í nótt.  Nokkrir voru stöðvaðir vegna hr...
„Mjög stór og mikil­væg niður­staða fyrir okkur“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
„Mjög stór og mikil­væg niður­staða fyrir okkur“ - Vísir
Samkvæmt endurskoðuðu áhættumati eru forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík ásættanlegar, að því gefnu að skilgreindar öryggisfor...
Judge temporarily overturns Trump's White House media ban
📅 24.09.2026 👁️ 3
Judge temporarily overturns Trump's White House media ban
A court has ordered the US government to reinstate access to the building for CNN, Politico and MS NOW.
Police arrest 36 in raids on Vietnamese crime gangs across Scotland
📅 24.09.2026 👁️ 0
Police arrest 36 in raids on Vietnamese crime gangs across Scotland
About 300 officers took part in simultaneous early-morning raids at 47 sites across Scotland.
NHS staff investigated over access to dead teenager's medical records
📅 24.09.2026 👁️ 3
NHS staff investigated over access to dead teenager's medical records
Oliver McGowan, who died in 2016, may have had his medical records accessed inappropriately after his death by NHS staff in Bristol.
Prison staff told not to use inadequate cells as overcrowding worsens
📅 24.09.2026 👁️ 3
Prison staff told not to use inadequate cells as overcrowding worsens
Workers tell BBC they are increasingly having to put two inmates in single occupancy cells because of overcrowding.
Forseti Kína og frú í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum
📅 24.09.2026 👁️ 3
Forseti Kína og frú í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum
Xi Jingping forseti Kína og eiginkona hans Peng Liyuan komu í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna í gær. Donald Trump Bandaríkjaforseti tók á móti þei...
Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan
📅 24.09.2026 👁️ 2
Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan
Pakistanski herinn gerði loft- og drónaárásir á tíu mismunandi stöðum í Afganistan í nótt.Ráðherra upplýsingamála í Pakistan, Attaullah Tarar, greindi...
Trump offers warm welcome as China's Xi arrives for US visit
📅 24.09.2026 👁️ 3
Trump offers warm welcome as China's Xi arrives for US visit
The US treasury secretary said that the US and China had reached an agreement to extend a trade truce as Xi began his visit.
Bandaríkin leggja 267 milljónir dala til baráttu gegn ebólu
📅 24.09.2026 👁️ 2
Bandaríkin leggja 267 milljónir dala til baráttu gegn ebólu
Bandaríkjastjórn ætlar að leggja til aukaframlag upp á 267 milljónir dala til baráttunnar gegn ebólaveiru í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Greint var fr...
ÖSE verður ekki með kosningaeftirlit í Bandaríkjunum
📅 24.09.2026 👁️ 3
ÖSE verður ekki með kosningaeftirlit í Bandaríkjunum
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, verður ekki boðið að fylgjast með þingkosningum í Bandaríkjunum í nóvember næstkomandi. Frá þessu er greint í...
They were labelled 'pervert glasses'. Will a camera-free version transform their image?
📅 24.09.2026 👁️ 3
They were labelled 'pervert glasses'. Will a camera-free version transform their image?
Meta has unveiled audio-only smart glasses, with some questioning whether it is a response to the backlash over privacy.
Eight US sailors in USS Abraham Lincoln strike group attempted suicide, Navy says
📅 24.09.2026 👁️ 3
Eight US sailors in USS Abraham Lincoln strike group attempted suicide, Navy says
In a letter to Senator Kirsten Gillibrand, acting Navy Secretary Hung Cao said the crew had adequate mental health support during the long deployment.
Oleshky: Residents eating garden weeds in Russian-occupied city cut off from food and water
📅 23.09.2026 👁️ 3
Oleshky: Residents eating garden weeds in Russian-occupied city cut off from food and water
The BBC has spoken to residents in the Russian-occupied Ukrainian town of Oleshky who say they are being "constantly shelled".
„Hér er bara hjartað, það er í Grindavík“
📅 23.09.2026 👁️ 6
„Hér er bara hjartað, það er í Grindavík“
Hjartað er hér segir Gísli Grétar Sigurðsson Grindvíkingur sem fagnar endurreisnarumræðu stjórnvalda. Hann vonast að sem flestir snúi til baka og finn...
Gervi­greind hakkaði sig inn á vef stjórn­valda - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 4
Gervi­greind hakkaði sig inn á vef stjórn­valda - Vísir
Hann greindi frá þessu í dag er hann ræddi við fréttamenn á hliðarlínum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem var sett í New York í vikunni. „Þetta a...
Ekki von á frekari aðgerðum til að lækka eldsneytisverð
📅 23.09.2026 👁️ 4
Ekki von á frekari aðgerðum til að lækka eldsneytisverð
Íslensk stjórnvöld lækkuðu í vor virðisaukaskatt á eldsneyti vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs og lækkaði lítrinn af bensíni og dísil um 26 til 32 krón...
A red carpet and military flyover - How Trump welcomed Xi
📅 23.09.2026 👁️ 3
A red carpet and military flyover - How Trump welcomed Xi
The two B-1 bombers that flew overhead are a key part of the US's combat arsenal, and produce a notoriously loud roar when they pass by.
Segja upp tveimur sér­fræðingum - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 4
Segja upp tveimur sér­fræðingum - Vísir
Margrét Erlendsdóttir, upplýsingafulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, staðfestir þetta í samtali við Vísi en Rúv greindi fyrst frá. Hún segir að greint ...
RAF Valley: What video footage tells us about training jet crash
📅 23.09.2026 👁️ 7
RAF Valley: What video footage tells us about training jet crash
The RAF said training on their Hawk jets had been "temporarily" paused while an investigation is under way.
Mannleg mistök þegar stíflueyðir og þrifaefni bönduðust saman
📅 23.09.2026 👁️ 4
Mannleg mistök þegar stíflueyðir og þrifaefni bönduðust saman
Komin er nokkuð skýr mynd af því hvað olli efnaleka í fiskvinnslu á Óseyri á Akureyri í dag. Klórgas myndaðist þegar stíflueyðir blandaðist við annað ...
OpenAI agent 'infiltrated' Australian government website, PM says
📅 23.09.2026 👁️ 4
OpenAI agent 'infiltrated' Australian government website, PM says
Albanese said he expressed "concern" to OpenAI founder Sam Altman, after authorities were informed three months after the breach in June.
Tekin á teppið fyrir klæðaburð í dómsal – Er þessi kjóll óviðeigandi?
📅 23.09.2026 👁️ 4
Tekin á teppið fyrir klæðaburð í dómsal – Er þessi kjóll óviðeigandi?
Bandarískur lögmaður segist hafa verið niðurlægður fyrir framan kollega sína og sakborninga þegar dómari gerði athugasemd við klæðaburð hennar í dómsa...
Skorið verulega niður í framkvæmdum hjá Hveragerðisbæ eftir skýrsluna kolsvörtu - Áætluð rekstrarniðurstaða versnar um nærri milljarð
📅 23.09.2026 👁️ 4
Skorið verulega niður í framkvæmdum hjá Hveragerðisbæ eftir skýrsluna kolsvörtu - Áætluð rekstrarniðurstaða versnar um nærri milljarð
Bæjarstjórn Hveragerðis hefur sammælst um að skera töluvert niður í fjárfestingum þessa árs. Er þá aðallega skorið niður í framkvæmdum sem átti að ráð...
Banda­rísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í mið­bænum - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 4
Banda­rísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í mið­bænum - Vísir
Það eru listakonurnar í Kirsuberjatréinu á Vesturgötu sem greina frá því að leikarinn hafi sótt þær heim í dag. Hann kíkti við í listabúðinni í hádegi...
New vocational GCSE subjects to be introduced in schools
📅 23.09.2026 👁️ 4
New vocational GCSE subjects to be introduced in schools
New GCSE subjects could include child development and building and construction as vocational courses are being introduced.
Hafa nokkrar vikur til að koma starfsemi SÁÁ í eðlilegt horf
📅 23.09.2026 👁️ 4
Hafa nokkrar vikur til að koma starfsemi SÁÁ í eðlilegt horf
Alma Möller heilbrigðisráðherra segir þá stöðu sem uppi sé innan SÁÁ vonbrigði, traust á stjórn SÁÁ hafi beðið hnekki.„Það er ekkert útilokað fyrir st...
Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Ós­eyri - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 4
Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Ós­eyri - Vísir
„Þetta leit ekki vel út í byrjun og svona aðgerð er meira langhlaup heldur en spretthlaup, en þetta fór allt vel að lokum,“ segir Maron Pétursson vara...