Í tilkynningu er haft eftir Aríel Péturssyni, formanni Sjómannadagsráðs, að það stefni í mikið fjör á hátíðarsvæðinu á Granda á morgun.
Sigga Ósk og Kristmundur Axel eru meðal þeirra sem koma fram á stóra sviðinu á morgun og á litla sviðinu stíga bæði Bjössi Brunabangsi og Sólon á svið ásamt fleirum.