Landsmenn mega víðast hvar gera ráð fyrir einhverri vætu í dag. Þó gæti orðið undantekning á því á Norðausturlandi þar sem bjart verður með köflum. Norðan og austan til er útlit fyrir stinningsgolu og kalda en hægari vindur verður vestan til.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Suðaustan 5-13 metrar á sekúndu en hægari breytileg átt vestan til. Rigning eða skúrir og hiti 8-12 stig en bjartviðri norðaustanlands með hita að 16 stigum.
Austlæg átt 5-13 og rigning eða skúrir á morgun en léttskýjað á Norðausturlandi. Hiti 10-15 stig.