Allir skipverjar á Bandero verða frjálsir ferða sinna í dag. Lögreglan ætlar að áfrýja ákvörðun héraðsdóms um ógildingu ákvörðunar um að hefta för áhafnarinnar frá borði til Landsréttar.
Þetta segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, við fréttastofu.
Lögmaður skipverjans sem kærði ákvörðun lögreglu staðfesti við fréttastofu að skjólstæðingur hans væri frjáls ferða sinna eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti ákvörðun lögreglu.
Ásgeir Þór segir að lögregla hafi heimild til að takmarka för fólks við ákveðna staði, en að héraðsdómur hafi metið það svo að skipið væri ekki nógu vel skilgreindur staður. Hann segir að úrskurðinum verði áfrýjað til Landsréttar þar sem réttarframkvæmd í málum sem þessum sé lítil.
Úrskurður héraðsdóms nær aðeins til skipverjans sem kærði ákvörðun lögreglunnar en Ásgeir segir að eitt verði yfir alla að ganga og því verði öllum skipverjum birt ný ákvörðun í dag þar sem þeim verður gert skylt að halda sig á höfuðborgarsvæðinu og tilkynna sig á lögreglustöð einu sinni á dag.
Ekki samvinnuþýðir
Von er á ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun skipverjanna síðar í dag. Ásgeir segir að verði þeim brottvísað sé framkvæmdin í höndum heimferðardeildar ríkislögreglustjóra.
Ásgeir segir skipverjana hafa verið ágæta til samtals en þeir hafi ekki verið mjög samvinnuþýðir við rannsóknar lögreglu. Lögregla mun fara fram á heimild til að skoða farsíma og fartölvur skipverjanna sem lögregla lagði hald á fyrir helgi.