Allir og amma þeirra senda kónginum af­mælis­kveðju - Vísir

Allir og amma þeirra senda kónginum af­mælis­kveðju - Vísir

Allir og amma þeirra senda kónginum af­mælis­kveðju - Vísir

Afmæliskveðjum rignir nú yfir Bubba. Allir og amma þeirra skrifa færslu á Facebook honum til heiðurs. Í ófáum þeirra er Bubba lýst sem „kónginum“.

Hér að neðan verður fjallað um nokkrar af þessum kveðjum, en þær eru þó einungis brotabrot af þeim sem birst hafa í dag.

„Þjóðin fagnar í dag sjötugsafmæli listamanns sem hefur ýmist strokið henni blíðlega eða hirt hana - eða einstaklinga meðal hennar - harkalega síðastliðin 46 ár; ævinlega óragur við að segja það sem honum bjó í brjósti hverju sinni. Enginn maður hefur haldið lengur í konungstign yfir Íslendingum en hann. Öll kunnum við einhver lög eftir hann, þau hafa síast inn í heilabúið hvert af öðru alveg síðan hann söng um sjómanninn með stálið og hnífinn sem segir stúlkunni sinni að hún geti komið og sótt sjórekið líkið af honum,“ skrifar Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur og höfundur ævisögu Bubba sem var gefin út árið 1990.

Hún segir Bubba einstakan listamann, en einnig tryggan vin.

„Ég á dásamlega minningu um stóran hóp landa minna á ýmsum aldri að syngja það lag fullum hálsi á leið milli grísku eyjanna í Eyjahafi. Fá önnur lög hefðu fengið svo eindregnar undirtektir og mig langar til að þakka honum innilega fyrir að hafa haldið sig við íslenskuna - við kynnum ekki alla þessa texta nema vegna þess að þeir eru á íslensku og hann var sá sem bjargaði íslenskri tungu á þessu sviði, sviði dægurtónlistar,“ segir hún.

Eyþór Ingi Gunnlaugsson tónlistarmaður óskar Bubba, manninum sem breytti lífi hans, til hamingju með daginn, en Eyþór skaust á stjörnuhimininn átján ára gamall þegar hann bar sigur úr býtum í sjónvarpsþáttunum Bandið hans Bubba árið 2008.

„Bubbi er einhvern veginn bestur í öllu. Flestar bestu plöturnar, flesta bestu topp slagarana, bestu textarnir, bestu ballöðurnar og bestu rokklögin. Einn fallegasti kirkjusálmur þjóðarinnar er Kveðjan hans Bubba. Hann er líklega besti kassagítarleikari landsins. Listaverkin hans, myndirnar og textaverkin seljast upp á mettíma. Besti og langlífasti söngleikur landsins, 9 líf, er auðvitað Bubbasöngleikur,“ skrifar Eyþór sem heldur því fram að þjóðin væri fátæk án Bubba.

„Meistarinn og náttúruaflið Bubbi er 70 ára í dag! Án efa einn mesti og fremsti listamaður þjóðarinnar! List hans hefur með einstökum hætti fangað íslenskan samtíma. Stundum finnst mér ekkert vera íslenskara en Bubbi Morthens, saga hans og sigrar,“ skrifar Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins.

Rifja upp þegar þau sáu Bubba á unglingsaldri

Ólafur Páll Gunnarsson, sem hefur verið umsjónarmaður Rokklands á Rás tvö í þrjátíu ár, sendi Bubba kveðju áður en hann fór á tónleikana í gærkvöldi. Hann sagði að það yrði ekki „kallinn í útvarpinu“ sem myndi fagna sjötíu árum Bubba í kvöld heldur fimmtán ára unglinginn sem sá hann á tónleikum á Hótel Akranes 1984, og birti mynd sem hann fékk með goðinu þá.

Lára Zulima Ómarsdottir, fjölmiðlakona, rifjar upp fyrstu kynni sín af Bubba, en líkt og í tilfelli Ólafs Páls komu þau einnig þegar hún var unglingur.

„Í fyrsta skipti sem ég hitti þig þá var ég unglingur og formaður nemendafélagsins sem ákvað að biðja þig um að koma að spila í skólanum. Kona var þá nýkomin út. Af því tilefni gerði ég ásamt vinkonum mínum stutta mynd um þig sem mér telst til að sé fyrsta heimildarmyndin sem ég gerði. Við tókum viðtöl við fólk í skólanum um þig en rúsínan í pylsuendanum var auðvitað viðtalið við þig, sem er það fyrsta sem ég tók. 20 árum seinna tók ég næsta viðtal við þig og þá fyrir Stöð 2. Ég var nýbyrjuð í fjölmiðlum og var mjög stressuð. Þegar ég kom og heilsaði þér í sminki sagði sú sem var að farða þig við þig að ég væri mikill aðdáandi. Ég fór í kleinu. Fannst það pínu ófaglegt og vildi alls ekki að þú vissir það áður en viðtalið byrjaði,“ skrifar hún.

Felix Bergsson, fjölmiðlamaður og skemmtikraftur, rifjar líka upp þegar hann, þá þrettán eða fjórtán ára, sá Bubba í fyrsta skipti, með hljómsveitinni Utangarðsmönnum.

„Það voru mörg stór augnablik á þessum góðu þremur árum í skólanum við Hagatorg en það allra stærsta var þennan vetur þegar hljómsveitin Utangarðsmenn kom og spilaði fyrir okkur unglingana. Það hefur sjálfsagt verið á þriðjudagskvöldi eða eitthvað. Ég vissi ekkert hvað ég var að fara að sjá og upplifa. Þekkti þennan Bubba Morthens ekki neitt. Vissi bara að þetta var eitthvað nýtt og öðruvísi. Fann að ég mátti ekki missa af þessu,“ skrifar Felix.

„En til að gera langa sögu stutta var þetta fullkomlega ógleymanlegt. Utangarðsmenn sýndu okkur unglingunum þá virðingu að gefa okkur alvöru rokktónleika þar sem ekkert var gefið eftir. Bubbi var rosalegur og sló ekki af eina sekúndu. Gott ef hann var ekki kominn úr að ofan! Ég hef aldrei fyrr eða síðar upplifað annað eins! Ég vissi ekki að samkomusalurinn okkar í Hagaskóla gæti hýst svona mikla snilld. Það var eins og það væri keyrt yfir mig og bakkað yfir mig aftur. Ég hló og grét og hló meira, öskraði og dansaði og svitnaði og söng með og elskaði lífið. Ég fattaði rokkið. Fattaði hvað tónlist getur gert mann glaðan og fyllt mann af tilfinningum. Ég eignaðist Geislavirka og hún fór ekki af plötuspilaranum svo mánuðum skipti. Ég og Þórir bróðir og Gunni Páls vinur okkar að öskursyngja lögin, læra alla textana og skemmta okkur konunglega í kjallaranum á Túnsbergi. Bestu stundir lífsins.“

Hvor er betri Paul eða Bubbi?

Tveir menn bera saman Bubba og Bítilinn Paul McCartney, sem verður 84 ára eftir örfáa daga. Báðir virðast komast að sömu niðurstöðu. Annars vegar er það Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, sem hlustaði á nýjar plötur beggja listamanna meðan hann keyrði norður í Svarfaðardal.

„Mér fannst Bubbi betri. Til hamingju með daginn meistari og takk fyrir þína miklu list!“ skrifar hann.

Hins vegar ber Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, kappana tvo saman.

„Ég sá Paul McCartney fyrir um tíu árum úti í Vín. Það var magnaðasta tónleikaupplifun mín – þar til í gærkvöldi, að ég sá Bubba og bandið hans. Magnað að horfa á mannhafið – unga og gamla – syngja með sínu skáldi alls konar flóknar og margræðar línu um ástina og dauðann og örlög mannanna, og sjálfur hef ég ekki sungið svona mikið og svona hátt síðan á síðasta Spaðaballi,“ skrifar Guðmundur Andri.

Annar rithöfundur, Stefán Máni Sigþórsson, rifjar upp afmælistónleika Bubba fyrir tuttugu árum, og ef til vill frægasta bol Íslandssögunnar.

„Það vita það mjög fáir en ég gaf Bubba Mortens þennan bol rétt fyrir tónleikana sem hann hélt þegar hann varð fimmtugur, 6. júní 2006. Hugmyndin að bolnum, hönnun og prentun var í höndum okkar Jóns Sæmundar. Aðeins eitt eintak prentað. Við Bubbi vorum ágætis félagar á þessum frekar myrka tíma í lífi hans í kjölfar skilnaðar. Við æfðum saman í Þrekhúsinu og studdum hvor annan í lífsins ólgusjó. En síðan skildu leiðir, eins og gengur og gerist,“ segir Stefán Máni.

Til staðar fyrir mann sem þurfti að finna leið úr myrkrinu

Frosti Logason fjölmiðlamaður sendir líka kveðju. Hann segir Bubba örlagavald í sínu lífi, bæði vegna tónlistarinnar og þá hafi hann verið til staðar fyrir Frosta á erfiðum tíma.

„Tónlistin þín hefur verið hljóðrás í lífi heillar þjóðar. Fyrir mig hafði hún líka mjög persónulega þýðingu. Þú hafðir mikil áhrif á að ég vildi stofna hljómsveit á unglingsárunum og þannig ertu, hvort sem þér líkar betur eða verr, einn af örlagavöldunum í mínu lífi,“ segir Frosti.

„En áhrifin ná langt út fyrir tónlistina. Þú hefur líka verið mikil fyrirmynd í edrú lífi mínu. Þegar ég var sem týndastur og þurfti að finna leiðina út úr myrkrinu varstu ekki bara rödd á plötu eða maður á sviði. Þú varst til staðar fyrir mig sem manneskja, og því gleymi ég aldrei. Fyrir það, og fyrir alla tónlistina, kraftinn, heiðarleikann og innblásturinn í gegnum árin, er ég óendanlega þakklátur.“

Fékk loksins að sjá Bubba í réttu sjónarhorni í gærkvöldi

Þráinn Steinsson, útvarpsmaður og tæknigúru, hefur starfað nokkuð með Bubba í fengum árin, sent út tónleika hans og tekið upp tónlist með honum. Hann skrifar líka afmæliskveðju.

„Í gærkvöldi sá ég Bubbi Morthens frá réttu sjónarhorni, ég ekki afsíðis með headfón að mixa heldur sem áhorfandi í sal…, og þvílík upplifun!“ segir hann.

Þráinn minnist þá sérstaklega á eina stund á tónleikunum þegar hann minntist fallinna risa úr íslensku tónlistarlífi.

„Einstök stund þegar Bubbi minntist Magga Eiríks og Björgvins Halldórssonar og flutti Kveðju sem er lag sem á eftir að fylgja öllum í gröfina en þó lifa að eilífu, salurinn söng og allir með snefil af mennsku komust við.“

Bubbi Morthens heldur tvo stórtónleika í tilefni afmælisins.Vísir/Vilhelm

„Bubbi er fallinn, Bubbi er risinn“

Að lokum er vert að minnast á kveðju Arnar Úlfars Sævarssonar almannatenglis sem gerir tilraun að því að skilgreina Bubba.

„Bubbi Morthens er ráðgáta. Hann er ofurmenni sem er bara einn af okkur. Hann er hrjúfur og harður. Hann er mjúkur og umhyggjusamur. Bubbi er fallinn. Bubbi er risinn. Hann er svo margt og alltaf sá sami en samt aldrei. Ég á erfitt með Bubba Morthens. Þau sem ráða eiga erfitt með Bubba Morthens. Bubbi sjálfur á erfitt með Bubba Morthens. Enginn þolir hann en allir elska hann.“

#allir #amma #kónginum #senda #þeirra


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262894028d/allir-og-amma-theirra-senda-konginum-af-maelis-kvedju

📰 Aðrar fréttir

Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og nú þingmaður utan flokka, greindi frá því í ræðustól Alþingis í gær að hann hefði nýlega greinst m...
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
📅 22.10.2026 👁️ 1
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
Konur á aldrinum 23-64 ára fá boð í leghálsskimun með reglubundnum hætti. Konur sem fara reglulega í skimun fyrir leghálskrabbameini eru í minni hættu...
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
Margir sem komnir eru á miðjan aldur og yfir muna eftir bláum Ópal. Í september árið 2005 tilkynnti Nói Siríus að framleiðslu hans yrði hætt. Skýringi...
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minn...
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfé...
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
📅 22.10.2026 👁️ 1
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barði...
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 1
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
A big show, concert or comedy night can leave you feeling pleasantly full of noise, colour and conversation, but not quite ready to call it a night. T...
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
📅 22.10.2026 👁️ 1
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
Íslenskur kona sem hefur búið í Frakklandi í nær 20 ár segir ekki hafa komið á óvart þegar mótmælin, sem hafa verið í landinu síðustu vikur, hófust. H...
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur ...
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
📅 22.10.2026 👁️ 1
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
The Met Office have named a new storm, Boelo, which is set to bring another round of stormy weather to the UK over the weekend.
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni. Málið varðaði upplýsingar sem var að fin...
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
📅 22.10.2026 👁️ 2
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla af óeirðunum í Frakklandi. Hann sakar s...
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur neikvæðar umsagnir skólasamfélagsins um innleiðingu nýs einkunnakvarða í grunnskólum ekkert á sig fá....
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
„Uppsagnarhrinunni er ekki lokið,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi um uppsagnir s...
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
📅 22.10.2026 👁️ 2
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Seðlabankanum í vil í miskabótamáli sem Þorsteinn Már Baldvinsson höfðaði gegn bankanum.Dómurinn var kveðinn upp í morgu...
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
📅 22.10.2026 👁️ 1
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
New South Wales Police say inquiries took place "following a report of inappropriate content being shared".
Uppgötvuðu augnalausan snigil
📅 22.10.2026 👁️ 2
Uppgötvuðu augnalausan snigil
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund ferskvatnssnigils í helli í Kína.Snigillinn, sem hefur fengið fræðiheitið Erhaia dijiang, hefur aðlagas...
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þangað var hann mættur til að ræða hagræðingu í Reykjavík, sem bróðir hans Róbe...
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
📅 22.10.2026 👁️ 2
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
The influential studio that made Mass Effect and Dragon Age announces it is closing its doors.
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að setja verði mikinn fyrirvara við yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stríðslok í Úk...
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 2
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs tillögu Samfylkingarinnar um að vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervig...
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
📅 22.10.2026 👁️ 2
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
Systir Matthew Perry greinir frá nýjum, hjartnæmum upplýsingum um einkajarðarför hans.Mary Robertson, leikstjóri Netflix-heimildarmyndarinnar The One ...
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
📅 22.10.2026 👁️ 2
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
Marta María Winkel, umsjónarmaður Smartlands, segir að eftir skrif hennar um sundferð þingmannanna fimm í Selárlaug nýverið hafi tölvupóstum rignt yfi...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
📅 22.10.2026 👁️ 2
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
Félagið Aurora Abalone (Sæbýli hf.) hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu til uppbyggingar 100 tonna árlegrar framleiðslu.Í fréttatilkynni...
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
Hin breska Dench er orðin 91 árs gömul og er ein dáðasta leikkona Bretlands, ef ekki heimsins. Hún hóf leikferilinn á sviði en færði sig svo yfir í kv...
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
📅 22.10.2026 👁️ 3
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
Hættuástand vegna öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu er ekki yfirstaðið að mati sérfræðings hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda. Bjark...
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
📅 22.10.2026 👁️ 2
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
The bank says it is using more AI leading to a 5% reduction in its workforce.
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
Prígósjín-veldið hefur minnkað nokkuð, þar sem stór hluti þess hefur endað í höndum varnarmálaráðuneytis Rússlands en Pavel er enn mjög umsvifamikill ...
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling í bifreið sem sagður var hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla. Lögreglumenn fór...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
📅 22.10.2026 👁️ 3
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Ástleysið er sárt
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ástleysið er sárt
Ástleysið er sárt Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og...
Geta nú lokað Reykja­nes­brautinni með fjar­stýringu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Geta nú lokað Reykja­nes­brautinni með fjar­stýringu - Vísir
Frá þessu segir á vef Vegagerðarinnar. Þar kemur fram að ekki þurfi þá lengur að senda lögreglu, björgunarsveitir eða starfsfólk Vegagerðarinnar á sta...
Ótti við ras­ista­stimpil megi ekki stöðva alla um­ræðu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ótti við ras­ista­stimpil megi ekki stöðva alla um­ræðu - Vísir
Síðustu daga komst Elliði í hann krappan á samfélagsmiðlum þegar hann birti mynd af mönnum sem hann tengdi við óeirðaöldu sem gengur nú yfir Frakkland...
Fasteignamarkaðurinn ekki daufari í 12 ár
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fasteignamarkaðurinn ekki daufari í 12 ár
Hvorki kaupverð né leiguverð íbúðarhúsnæðis heldur í við verðbólgu, samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Fastei...
Rússar jákvæðir fyrir þríhliða viðræðum við Úkraínu
📅 22.10.2026 👁️ 3
Rússar jákvæðir fyrir þríhliða viðræðum við Úkraínu
Steve Witkoff erindreki Bandaríkjastjórnar og Vladimír Pútín Rússlandsforseti funduðu í Sankti Pétursborg í Rússlandi í gær. Þetta var níundi fundur þ...
Court halts eviction of 70-year-old cancer patient in south Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 3
Court halts eviction of 70-year-old cancer patient in south Tenerife
A court has stopped the eviction of a 70-year-old man with cancer in Guaza, in the south Tenerife municipality, a day before it was due to take place....
Slydda eða snjókoma norðvestan til
📅 22.10.2026 👁️ 3
Slydda eða snjókoma norðvestan til
Íbúar á norðvesturhorninu geta búist við dálítilli slyddu eða snjókomu í dag og víðar á landinu er útlit fyrir skúrir eða slydduél. Norðantil verður þ...
Geymir þú brauðið á þessum stað? Þá ættirðu að hugsa þig tvisvar um
📅 22.10.2026 👁️ 3
Geymir þú brauðið á þessum stað? Þá ættirðu að hugsa þig tvisvar um
Hvar er best að geyma brauð svo það haldist ferskt sem lengst? Í ísskápnum, plastpoka eða brauðkassa? Bakarar segja að margir geri mistök þegar kemur ...
Ekki er kálið sopið... Hvað gerist ef Demókratar taka báðar þingdeildir?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ekki er kálið sopið... Hvað gerist ef Demókratar taka báðar þingdeildir?
Allt útlit er fyrir að Demókratar nái stjórn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í kosningunum sem fara fram þar í landi þann 3. nóvember. Allar kannanir ...
Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið? - Vísir
Á sama tíma og fornleifafræðingar koma að tómum kofanum standa stærðfræðingar frammi fyrir gagnstæðum vanda. Fyrr í mánuðinum birti gervigreindarfyrir...
Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður - Vísir
Fjölmiðlar, fjölmiðlanefnd og hlaðvörp hafa verið töluvert í umræðunni. Undir Loga Einarssyni eru reyndar fjölmörg önnur mál, svo sem háskólar, nýsköp...
Three pupils hospitalised in viral meningitis outbreak in El Hierro
📅 22.10.2026 👁️ 3
Three pupils hospitalised in viral meningitis outbreak in El Hierro
Health officials have confirmed three cases of viral meningitis linked to pupils at CEIP Tigaday in La Frontera, El Hierro. All of those affected are ...
Murder suspect arrested in Tenerife after 9 years thanks to DNA breakthrough
📅 22.10.2026 👁️ 3
Murder suspect arrested in Tenerife after 9 years thanks to DNA breakthrough
A man has been arrested and sent to prison pending proceedings over the sexual assault and murder of a woman in Tenerife nine years ago.The National P...
Mærður höfundur hankaður á gervigreind
📅 22.10.2026 👁️ 3
Mærður höfundur hankaður á gervigreind
Mærður höfundur hankaður á gervigreind Nýstirni í skáld­sagna­heim­inum hefur orðið fyrir aflýs­ingu eftir að gervi­greind greind­ist í margróm­uðu ve...
Ung­menni gripin við inn­brot - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ung­menni gripin við inn­brot - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar þar sem greint er frá því helsta sem kom upp frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í nótt. Þar er sagt að l...
Is the UK set to green-light the Rosebank oil field?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Is the UK set to green-light the Rosebank oil field?
Scotland editor James Cook visits Rosebank - the UK's largest known untapped oilfield - in the North Atlantic.
THURSDAY WEATHER: Brighter skies in the eastern islands as showers continue further west
📅 22.10.2026 👁️ 3
THURSDAY WEATHER: Brighter skies in the eastern islands as showers continue further west
The Canary Islands will see contrasting weather today, Thursday 22nd October, with improving conditions in the east and a greater chance of rain acros...
Þorsteinn Pálsson skrifar: „Þetta lið“ og tilbeiðsluskattur þess
📅 22.10.2026 👁️ 3
Þorsteinn Pálsson skrifar: „Þetta lið“ og tilbeiðsluskattur þess
Mynd Á dögunum þegar rökleysan í efnahagsumræðunum gekk fram af
Fjögur ungmenni grunuð um innbrot
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fjögur ungmenni grunuð um innbrot
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gær eða nótt um fjögur ungmenni sem voru að brjótast inn í húsnæði í umdæmi 1, sem er Austurbær, M...