Allir dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur verða að víkja sæti í skaðabótamáli sem kona hefur höfðað gegn ríkinu. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms þessa efnis fyrir helgi.
Konan krefst bóta vegna breytinga sem gerðar voru á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins 2016. Þessi lagabreyting gerði stjórn sjóðsins kleift að skerða lífeyrisréttindi félaga í A-deild 2023 vegna hækkandi lífaldurs og ákvörðunar um að miða réttindasöfnun félaga við væntan lífaldur.
Kona sem var ljósmóðir um áratugaskeið og er komin á eftirlaun segir að með þessu hafi greiðslur sjóðsins til hennar lækkað um 9,9 prósent að meðaltali. Þetta vill hún að ríkið bæti sér.
Allir í sama sjóði
Skaðabótamál konunnar var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Allir dómararnir eiga það sameiginlegt með konunni sem stefndi ríkinu að vera sjóðsfélagar í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Dómsniðurstaðan getur því haft áhrif á fjárhagslega hagsmuni þeirra.
Slíkt leiðir ekki sjálfkrafa til vanhæfis dómara. Hagsmunirnir þurfa að vera umtalsverðir. Dómarinn sem hafði verið úthlutað máli konunnar sagði sig frá því vegna vanhæfis. Dómstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur fór þá yfir stöðu dómara og efni málsins. Niðurstaða hans var að allir dómararnir væru vanhæfir.
Landsréttur tók undir með héraðsdómi
Lögmaður ríkisins kærði niðurstöðuna til Landsréttar sem staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um að allir dómarar við dómstólinn væru vanhæfir. Því þarf að skipa dómara utan þess hóps til að dæma um bótakröfu ljósmóðurinnar.