Suðaustan 5-13 m/s suðvestan- og vestanlands, annars hægari vindur. Stöku skúrir eða él, en þurrt að mestu á Norðurlandi. Hiti víða 0 til 5 stig sunnan- og vestanlands og minnkandi frost í öðrum landshlutum. Bætir í vind í kvöld.
Lægð suðvestur af landinu þokast norðvestur, en á morgun nálgast ný lægð úr suðri og verður heldur nærgöngulli. Annað kvöld hvessir með rigningu eða slyddu og slær jafnvel í storm suðvestantil. Jafnframt hlýnar í veðri. Þurrt á Norður- og Norðausturlandi.
Á sunnudag er spáð suðaustan hvassviðri með rigningu sunnan- og vestantil, en fer að lægja vestanlands seinnipartinn. Hiti víða 5 til 10 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Suðaustan 10-18 m/s suðvestantil, annars hægari vindur. Dálítil rigning eða slydda með köflum og hiti 0 til 6 stig, en þurrt á Norður- og Norðausturlandi með hita um eða undir frostmarki. Hvessir og hlýnar um kvöldið með rigningu eða slyddu sunnan- og vestanlands.
Á sunnudag:
Hvöss suðaustanátt og rigning, en úrkomulítið norðanlands. Dregur úr vindi eftir hádegi, hiti 3 til 9 stig.
Á mánudag:
Stíf suðaustanátt, vætusamt og milt en lengst af þurrt á Norðurlandi.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðlæg átt og rigning eða slydda, heldur svalara.
Á fimmtudag:
Suðlæg eða breytileg átt og skúrir eða él. Hiti kringum frostmark.