Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sektað kínversku netverslunina Ali Express um 550 milljónir evra (hátt í áttatíu milljarða króna) fyrir að koma ekki nægilega vel í veg fyrir að hættulegar og ólöglegar vörur séu seldar á vefsíðu fyrirtækisins. Ákvörðunin var kynnt í Brussel í morgun.
Sektin er lögð á Ali Express á grundvelli reglugerðar ESB um starfsemi netfyrirtækja (DSA - Digital Services Act). Þessi reglugerð tók gildi árið 2022 og hefur ítrekað verið beitt gegn netfyrirtækjum á borð við Shein, Facebook, Instagram og X, meðal annars vegna háttsemi þessara fyrirtækja sem talin er stuðla að netfíkn barna og unglinga.
Fyrr á þessu ári var Temu netverslunin sektuð um 30 milljarða króna fyrir að selja ólöglegar vörur í ríkjum Evrópusambandsins.
Íslenskum stjórnvöldum er skylt að innleiða þessa reglugerð á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og undanfarin ár hefur verið unnið að því að koma henni í íslenskt og norskt lagaumhverfi.