Agnar H. Johnson skrifar: Viljum við halda möguleikunum opnum fyrir ungt fólk og framtíðarkynslóðir? Eða ætlum við að loka á stærstu tækifæri sem gætu verið handan hornsins? Loka ekki á framtíðarmöguleika þjóðarinnar til bættra lífskjara og öryggis. - Tækifæri sem mun vart bjóðast aftur. Margir óttast breytingar og skelfast það sem þeir þekkja ekki. Það er kannski mannlegt. Að loka á tækifærin getur verið skelfilegra en óttinn sjálfur. Viljum við sem þjóð virkilega loka dyrum og brjóta brýr? Svarið fæst laugardaginn 29. ágúst.
Agnar H. Johnson skrifar: Verum jákvæð og opin fyrir tækifærum