Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, undirrituðu samstarfssamning fyrr í vikunni sem ætlað er að auðvelda afreksfólki að stunda nám við skólann samhliða afreksíþróttaiðkun, með það fyrir augum að hópurinn nái góðum árangri bæði í námi og á íþróttavellinum.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Samningurinn er gerður í framhaldi af stefnumótun stjórnvalda um bætta umgjörð fyrir afreksíþróttafólk á Íslandi.
Auka nýsköpun og þekkingu á sviði íþrótta
Í nýrri framtíðarstefnu stjórnvalda er lögð áhersla á að styrkja þurfi samstarf ÍSÍ og háskólasamfélagsins, meðal annars með því að samþætta betur nám og afreksíþróttaferil, framkvæma reglulegar afkastagetumælingar meðal afreksíþróttafólks og auka nýsköpun og þekkingu á sviði íþrótta.
Meðal þeirra sem komið hafa að stefnumótun stjórnvalda eru Erlingur Jóhannsson, prófessor í íþrótta- og heilsufræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og Kristín Birna Ólafsdóttir, afreksstjóri ÍSÍ.
Skólinn leitar leiða til að veita sveigjanleika
Samningurinn er sagður marka tímamót. Hann kveði meðal annars á um að sérsambönd ÍSÍ skilgreini þann hóp afreksíþróttafólks sem þurfi á sveigjanleika í námi að halda vegna afreksíþróttaiðkunar sinnar í samvinnu við Afreksmiðstöð Íslands (AMÍ) og upplýsi HÍ um hverjir tilheyri hópnum.
Samkvæmt samningnum ber því afreksíþróttafólki sem þarf á auknum sveigjanleika að halda í námi jafnframt að framvísa skriflegri staðfestingu frá ÍSÍ um að það tilheyri afrekshópi sambandsins. Auk þess þarf afreksfólkið að upplýsa formann sinnar námsbrautar og umsjónarkennara í þeim námskeiðum sem það sækir um þörf fyrir sveigjanleika í námi strax í upphafi kennslumisseris.
Háskóli Íslands mun samkvæmt samningnum leita leiða til að veita afreksíþróttafólkinu sveigjanleika varðandi tímasókn, tímasetningu verkefnaskila og prófa og möguleika á að stunda hlutanám vegna æfinga, æfingabúða eða keppni á stórmótum eins og Evrópu- og heimsmeistaramótum og á Ólympíuleikum.
