Veðrið var með besta móti í Ljósavatnsskarði þar sem mesti hiti landsins mældist í dag, eða 21,8 gráður nú síðdegis.
Í Húsavík og við Torfur fóru hitatölur einnig upp í 20,8 gráður um hádegisbil og síðdegis.
Á hálendinu fór hitinn mest upp í 17,6 gráður við Svartárkot í Bárðardal.
Mest mældist hiti í Reykjavík rétt undir 13 gráðum um klukkan 17.