AfD lýsir yfir sigri í Saxlandi-Anhalt

Þýski hægri þjóðernisflokkurinn Alternative für Deutschland, AfD, hefur lýst yfir sigri í kosningum í sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt. Ulrich Siegmund, oddviti flokksins í ríkinu, sagði flokkinn hafa skrifað sig í sögubækurnar og að hann hefði náð öllum sínum markmiðum.
Aðspurður sagði hann of snemmt að fullyrða að hann yrði forsætisráðherra. Þegar 95 prósent atkvæða hafa verið talin er AfD með 44 prósent og tvöfaldar fylgi sitt frá síðustu kosningum. Kristilegir demókratar, flokkur Friedrichs Merz, er með 17,4.
Í fyrri tölum voru Kristilegir demókratar með 18,5 af hundraði atkvæða. Sá flokkur hefur stýrt Saxlandi-Anhalt frá árinu 2002.
Leiðtogi Kristilegra í ríkinu hefur viðurkennt ósigur. Ulrich Siegmund, kveðst jafnvel opinn fyrir að halda kosningar að nýju takist ekki að mynda meirihluta byggðan á kosningum gærdagsins.
Allir helstu stjórnmálaflokkar Þýskalands hafa myndað svokallaðan „eldvegg“ um að starfa ekki með AfD. Það samkomulag hefur verið í gildi frá því flokkurinn kom fyrst mönnum á sambandsþingið í Berlín árið 2017.