Það vakti athygli þegar Emmanuel Macron Frakklandsforseti bar sólgleraugu inni á efnahagsráðstefnunni í Davos, meira að segja þegar hann flutti ræðu sína. Hann hefur síðan þá sést með sólgleraugu við hin ýmsu tilefni. En hvers vegna?
Skýringin er nokkuð einföld. Áður en við rekjum hana skulum við fara yfir nokkur af þeim tilefnum sem Macron hefur borið sólgleraugu við, svipmyndir má sjá í myndskeiðinu hér að neðan.
Það má skipta þessu í tvö tímabil. Annars vegar í kringum efnahagsráðstefnuna í Davos í Sviss í janúar og hins vegar leiðtogafund NATO í Ankara í Tyrklandi í júlí.
- 20. janúar í Davos í Sviss
- 22. janúar í Brussel á leiðtogafundi ESB
- 28. janúar í París með Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens-Frederik Nielsen formanni landsstjórnar Grænlands
- 29. júní í París með Haitham bin Tariq Sultan soldáninum af Óman
- 1. júlí í París með António José Seguro forseta Portúgal
- 7. júlí í Damaskus í Sýrlandi með forsetanum Ahmed al-Sharaa
- 8. júlí í Ankara á leiðtogafundi NATO
- 10. júlí í París með Cyril Ramaphosa forseta Suður-Afríku
Skömmu fyrir efnahagsráðstefnuna í Davos sótti Macron viðburð franska hersins og var með rauðan blett í auga. Hann fullvissaði gesti um að þetta væri ekkert alvarlegt þegar hann ávarpaði samkomuna. Hann sett svo upp sólgleraugu með bláu speglagleri, sem hann bar síðar í Davos.
Rauði bletturinn í auga Macrons var einfaldlega eftir sprungna æð. Á fagmáli er þetta stundum kallað undirbinduvefblæðing eða undiraugnetnisblæðing sem er ein af fáum tegundum blæðinga sem eru yfirleitt ekki alvarlegar.
Þetta er sársaukalaust og hverfur af sjálfu sér innan tveggja vikna. Forsetahöllin í Frakklandi staðfesti svo að það sama hefði gerst fyrir leiðtogafund NATO í júlí.
Þetta getur gerst ef maður hnerrar eða hóstar kröftuglega. Einnig ef eitthvað stingst í augað eða það er nuddað. Þá er fólk með háan blóðþrýsting og sykursýki líklegra til að lenda í þessu.
En hvers vegna sólgleraugu? Blæðingin hefur ekki áhrif á sjónina svo líklegast hefur Macron einfaldlega viljað fela hana undir sólgleraugunum.
Í viðtali við franska sjónvarpsstöð sagði læknir að nafni Jimmy Mohammed að Macron vilji líklegast ekki vera myndaður í þessu ástandi. „Sólgleraugun eru til þess að vernda ímyndina frekar en auga.“