Tveir erlendir ferðamenn nutu aðstoðar björgunarsveita á Mælifellssandi í nótt. Ferðalangarnir höfðu lagt upp frá Suðurlandi og ætlað Fjallabak á reiðhjólum. Þegar þeim leist ekki á blikuna, og treystu sér ekki til að halda för sinni áfram eftir að við þeim blasti mikill snjór og krapi, óskuðu þeir eftir aðstoð.
Greint er frá aðgerðinni í fréttatilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu.
Þar segir að ferðamennirnir hafi náð sambandi í gegnum gervihnött. Í kjölfarið hafi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fengið tölvupóst frá aðstandenda annars þeirra sem greindi frá stöðunni og að þeir þyrftu á hjálp að halda.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir ferðalangana hafa notast við búnaðinn inReach til að ná sambandi við gervihnött.
Björgunarsveitirnar Dagrenning, Stjarnan og Kyndill frá Hvolsvelli, Skaftártungu og Kirkjubæjarklaustri voru boðaðar út og héldu inn á fjallabak úr sitt hvorri áttinni.
„Tveir bílar frá Dagrenningu komu svo að mönnunum klukkan 5 í morgun þar sem þeir höfðust við í tjaldi. Kyndli og Stjörnunni var þá snúið við en Kyndilsfólk beið meðan Stjarnan var að komast í gegnum mestu ófærðina,“ segir í tilkynningunni.
Mikill krapi hafi myndast á leiðinni og björgunarsveitarfólk því „þurft að grípa til skóflunnar til að komast alla leið.“
Björgunarfólk og göngumennirnir héldu síðan til baka og niður á Hvolsvöll. Þangað var komið upp úr klukkan átta í morgun.
Í tilkynningu Landsbjargar er einnig vikið að björgunaraðgerð utan Húsavíkur:
„Í gær var svo björgunarsveitin Garðar á Húsavík boðuð út vegna vélarbilunar í bát rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Húsavík, Arcpath ,á Skjálfandaflóa. Björgunarbáturinn Villi Páls hélt úr höfn rétt um nítján í gærkvöldi og var kominn að bátnum skömmu síðar. Ekki var yfirvofandi hætta á ferðum, rólegheitaveður en draga þurfti bátinn inn til Húsavíkur. Því verki var lokið rétt upp úr klukkan 21, þegar bátarnir voru komnir til hafnar á Húsavík.“