Hart er sótt að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og leiðtoga Verkamannaflokksins, eftir arfaslakt gengi í sveitarstjórnarkosningum á dögunum. Í ávarpi í morgun kvaðst hann ætla að sanna sig fyrir efasemdarmönnum.
Verkamannaflokkurinn galt afhroð í sveitarstjórnarkosningum fyrir helgi og Umbótaflokkurinn bætti verulega við sig. Farið er að hitna enn frekar undir Starmer í sæti leiðtoga. Jafnvel þingmenn flokksins kalla eftir afsögn hans. Ein þeirra er Paula Barker, sem sagði í morgunþætti breska ríkisútvarpsins í morgun að flokkurinn gæti komist hjá mikilli ringulreið færi Starmer frá. Hann væri fínasti náungi en afleitur stjórnmálamaður.
Reynir að knýja fram leiðtogakjör í september
Catherine West, þingmaður Verkamannaflokksins, ætlar að safna undirskriftum þingmanna til að hvetja Starmer til að boða til leiðtogakjörs í september. Þessu lýsti hún yfir eftir ræðu Starmers til flokksmanna í morgun. Hún sagði ágætis hugmyndir hafa komið fram en að þær hefðu komið fram of seint og væru ekki nóg. Hún hvetur hann til að segja af sér embætti forsætisráðherra strax.
Ætlar að efla tengsl við Evrópuríki
Starmer sagði að eins og allar ríkisstjórnir hefði þessi gert mistök en að stórar pólitískar ákvarðanir hefðu verið réttar. Þá kvaðst hann ætla að bæta tengsl við Evrópuríki og koma landinu í hjarta álfunnar.
„Ég veit að fólk er vonsvikið vegna stöðu Bretlands, stöðu stjórnmálanna og sumir eru vonsviknir með mig,“ sagði Starmer í ræðunni í morgun.
Þá kvaðst hann ætla að sanna að efasemdarmenn hefðu rangt fyrir sér. Ýmis áföll hefðu dunið á landinu síðustu tvo áratugi, svo sem bankahrun, Brexit, covid-faraldurinn og stríðið í Úkraínu. Styrkja þyrfti Bretland á sviði efnahagsmála, orkumála og varnarmála. Þá þyrfti meiri sanngirni að ríkja í samfélaginu.