Andy Burnham, sem tók við sem forsætisráðherra Bretlands í gær, ætlar að afnema virðisaukaskatt á rafmagni til að létta undir með heimilum í landinu. Þetta er fyrsta stóra aðgerðin sem hann boðar í embætti.
Mikilvæg yfirlýsing um forgangsröðun ríkisstjórnarinnar
Skattalækkunin nemur um 850 milljónum punda, tæplega 150 milljörðum íslenskra króna. Samkvæmt stjórnvöldum sparar þetta heimilum um 45 pund á ári, tæplega átta þúsund krónur.
John Healy, nýr fjármálaráðherra, segir að þetta dragi úr verðbólgu og létti undir með heimilum um allt Bretland.
Ákvörðunin hefur sætt töluverðri gagnrýni. Ed Davey, leiðtogi Frjálslyndra demókrata, segir þetta ekki nóg til að styðja fólkið í landinu.
„Ég tel þetta ekki vera bestu leiðina til að hjálpa fólki með reikninga og þetta er ekki nóg, en þetta er að minnsta kosti eitthvað.“
Jonathan Reynolds, nýr viðskiptaráðherra Bretlands, sagði í viðtali á BBC í morgun að þetta sé mikilvæg yfirlýsing um forgangsröðun nýju ríkisstjórnarinnar.
Spurningar hafa vaknað um hvernig skattalækkunin verði fjármögnuð. Reynolds sagði í viðtalinu að búið sé að fjármagna hana út þetta fjárhagsár með breytingum á forgangsröðun og að ekki þurfi viðbótarskatta til eða lántöku til að borga fyrir hana.
Fyrsti ríkisstjórnarfundurinn
Burnham hélt sinn fyrsta ríkisstjórnarfund í morgun. Gömul andlit og ný eru í ríkisstjórninni en í fyrsta sinn eru konur fleiri en karlar. Samtals eru 23 ráðherrar í ríkisstjórninni, þar með talinn forsætisráðherrann, af þeim eru 12 konur og 11 karlar.
Burnham sagðist í upphafi fundarins hafa heitið því að sýna alltaf hvernig ríkisstjórnin ætli að borga fyrir stefnumótun hennar.
Í lok fundarins sagðist hann ætla að leggja fram frekari áætlanir á næstu dögum. „En við ætlum alltaf að sýna hvernig við ætlum að borga fyrir hlutina, hverju við erum að forgangsraða. Það verður þema sem við snúum alltaf aftur að.“