Ferðamennirnir höfðu ætlað Fjallabak á reiðhjólum en leist ekki á blikuna í nótt þegar við þeim blasti mikill snjór og krapi og óskuðu aðstoðar gegnum gervihnött.
Björgunarsveitin Dagrenning náði til þeirra á Mælifellssandi klukkan 5 í morgun þar sem mennirnir höfðust við í tjaldi. Var þá öðrum leitarmönnum snúið við en Stjarnan hafði lent í miklum krapa og sóttist ferðin seint.
Björgunarfólk og ferðamennirnir komu svo til baka, niður á Hvolsvöll, upp úr klukkan átta í morgun. Mennina sakaði ekki.
Í samtali við fréttastofu segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, að ekki sé vitað hvað mennirnir ætli að gera næst.