Aðstoð við heimanám fyrir börn í grunnskólum

Samtökin Heimili og skóli og Reykjavíkurborg munu taka höndum saman og bjóða upp á aðstoð við heimanám fyrir grunnskólabörn á Borgarbókasafninu í Kringlunni og Borgarbókasafninu í Gerðubergi skólaárið 2026-2027.
Samningur þessa efnis var undirritaður af Hildi Björnsdóttur borgarstjóra , Sigvaldi Agli Lárussyni, formanni Heimilis og skóla og Kára Stefánssyni, stjórnarformanni Velferðarsjóðs barna en verkefnið nýtur styrks úr sjóðnum

Frá undirritun samningsins í Borgarbókasafninu í Kringlunni. Frá vinstri: Kári Stefánsson, stjórnarmaður Velferðarsjóðs barna, Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og Sigvaldi Egill Lárusson formaður Heimilis og skóla.
Mikilvægt framlag stuðnings börnum og foreldrum
Samstarfsaðilar telja verkefnið mikilvægt framlag til menntunar og velferðar barna í Reykjavík og vonast til að það muni auðvelda börnum og fjölskyldum þeirra að takast á við heimanám með auknum stuðningi og aðgengi að aðstoð.
