Samgöngustofa áréttar að aðeins annar þeirra flugmanna sem sviptir voru flugréttindum tíambundið vegna lágflugsins yfir Vestmannaeyjum 11. apríl verði kærður til lögreglu, áður kom fram að báðir yrðu kærðir.
Flugstjóri vélarinnar var að fljúga sitt seinasta flug áður en hann lét af störfum þegar atvikið átti sér stað. Hann var sviptur réttindum í 24 mánuði og verður kærður til lögreglu.
Hinn flugmaðurinn í stjórnklefa vélarinnar var sviptur réttindum í 12 mánuði. Hann verður ekki kærður til lögreglu.