Framkvæmdastjórn SÁÁ heldur starfi sínu áfram. Þetta varð ljóst þegar aðalstjórn félagsins samþykkti stuðningsyfirlýsingu við hana á fundi í gærkvöld.
Mikil óánægja hefur ríkt meðal starfsmanna SÁÁ undanfarið vegna framgöngu stjórnar. Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, forstjóri SÁÁ, og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur, sögðu báðar upp störfum í ágúst.
Í tilkynningu frá SÁÁ í dag segir að aðalstjórnin styðji framkvæmdastjórn í þeirri vinnu sem miði að því að tryggja að heilbrigðisþjónusta samtakanna haldi áfram í styrkum farvegi.
Þar segir að þegar hafi verið haft samband við utanaðkomandi aðila til að vinna að því að skapa vinnufrið, öryggi og traust í starfseminni. Þessi vinna er hafin.
„SÁÁ telur mikilvægt að sjónarmið starfsfólks fái að koma fram og að tekið sé á ólíkum skoðunum með málefnalegum og faglegum hætti. Forgangsverkefni næstu daga er því að eiga samtal við starfsfólk samtakanna, byggja upp traust og tryggja þann vinnufrið sem nauðsynlegur er fyrir öfluga og trausta þjónustu.“
Starfsmenn fengu sent bréf frá aðalstjórn í morgun. „Það er von okkar allra að okkur takist að ná saman, hlusta hvert á annað og byggja upp það traust og þann vinnufrið sem þarf til að horfa fram á veginn.“
Í bréfinu til starfsmanna er lýst mikilvægu og göfugu starfi SÁÁ í áratugi. „Nú skiptir mestu að við sameinumst um það sem við eigum sameiginlegt og tryggjum að hið góða og mikilvæga starf SÁÁ geti haldið áfram af fullum krafti.“