Að minnsta kosti þrír létust og 21 særðust í sprengjuárás sem gerð var á veitingastað í Moskvu í dag, að sögn lögreglu. Í fyrstu var talið að gassprenging í eldhúsi veitingastaðarins hafi valdið sprengingunni en síðar kom í ljós að um sprengjuárás væri að ræða. Þetta kemur fram á AFP-fréttaveitunni. Að sögn hryðjuverkanefndar Rússlands var sprengjan heimagerð.
Þau látnu eru kona sem bar sprengjuna inn á veitingastaðinn, öryggisvörður sem reyndi að stöðva hana og viðskiptavinur.
Rannsóknarlögreglumenn og tæknideildarlögregla fóru á vettvang ásamt slökkvibílum og sjúkrabílum.
Fréttin hefur verið uppfærð.