Áætlað er að opna tuttugu rými á nýrri deild á Landspítala í september. Deildin er hluti af bráðaþjónustu spítalans og er henni ætlað að létta á bráðamóttökunni.
„Bráðamatsdeildin er deild sem sér um að taka við sjúklingum frá bráðamóttöku sem þurfa frekara mat og uppvinnslu, frekari meðferð. Þetta er sem sagt deild innan lyflækninga og henni er ætlað að taka við fólki sem ekki kemst beint heim frá bráðamóttökunni heldur þarf aðeins lengri tíma og annaðhvort getur það útskrifast heim í kjölfarið eða þarf áframhaldandi innlögn inni á spítalanum,“ segir Telma Huld Ragnarsdóttir, yfirlæknir á almennum lyflækningum á Landspítala.
Rætt hefur verið um slæma stöðu bráðamóttöku Landspítalans árum saman. Fólk hefur legið frammi á göngum deildarinnar svo dögum skiptir og álag á starfsfólk verið mikið.
Ekki hægt að lofa því að rúm á göngum sé liðin tíð
Þegar nýja húsnæðið verður tekið í notkun verður fyrirkomulagið þó hið sama og áður. Ef leita þarf á bráðamóttökuna er gengið inn á sama stað og áður. Þar er hver og einn metinn og síðan tekin ákvörðun um hvort viðkomandi verði fluttur á hina nýju bráðamatsdeild.
Reiknað er með að sjúklingar dvelji í að meðaltali þrjá sólarhringa á deildinni. Tuttugu rúm eru þar, bæði í einbýli og tvíbýli, og fólki er haldið í virkni svo það komist sem fyrst heim. Unnið er að því að styrkja heimaþjónustu samhliða.
Forstöðuhjúkrunarfræðingur segist ekki geta lofað að það sé liðin tíð að fólk sé í rúmum frammi á göngum.
„Þetta er vandi sem er alþjóðlegur vandi og þetta er úti um allt. Áfram verður einhver bið. Fólk mun örugglega ekki renna alveg viðstöðulaust í réttar áttir en biðin á að styttast,“ segir Margrét Guðjónsdóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur.