„Við aukum öryggi blóðþega og stækkum hóp blóðgjafa. Verklagsreglur verða skýrar um að óheimilt sé að vísa blóðgjöfum frá á grundvelli kynhneigðar en skýr skilyrði sett um ábyrga kynhegðun allra blóðgjafa, óháð kynhneigð og kyni,“ er haft eftir Ölmu Möller heilbrigðisráðherra í tilkynningu.
Reglurnar eru í samræmi við álit ráðgjafanefndar um fagleg málefni blóðbankaþjónustu. Nefndin hefur að markmiði að tryggja sem best öryggi blóðþega með markvissri áhættugreiningu, einstaklingsbundnu áhættumati og NAT-skimun. Skimunin var innleidd fyrir rúmu ári og er skimað fyrir lifrarbólgu B og C og HIV-veirunni.
Til þessa máttu samkynhneigðir karlmenn á Íslandi ekki gefa blóð þar sem meiri líkur voru á því að þeir væru smitaðir af HIV-veirunni. Willum Þór Þórsson, þáverandi heilbrigðisráðherra, fullyrti að samkynhneigðir karlar mættu gefa blóð þann 1. júlí 2025 en það reyndist ekki rétt heldur var einungis verið að innleiða áðurnefnda NAT-skimun.
„Í fyrra voru innleidd næmari próf til að greina blóðborna smitsjúkdóma. Núna tökum við í notkun nýjan spurningalista fyrir blóðgjafa þar sem við tökum upp einstaklingsmiðað áhættumat, í stað eldri hópaviðmiðaðra skilmerkja. Allir blóðgjafar munu því framvegis svara sama spurningalistanum. Þetta er tímabær breyting og í samræmi við alþjóðlega þróun. Ég tel að við séum vel undirbúin undir þessar breytingar og ég vona að blóðgjafar verði sáttir við þær,” er haft eftir Þorbirni Jónssyni, yfirlækni Blóðbankans.