Fjallað var um málið í fréttaskýringaþættinum Þetta helst á Rás 1 í dag. Þar er ákvörðunin að hætta sjónvarpsfréttum hjá Sýn sett í samhengi við ákvörðunina að selja ekki hluta fjölmiðla fyrirtækisins til Símans líkt og til stóð.
Ef Síminn, eða Ásar, hefði keypt fjölmiðlaeignir eins og Vísi og Bylgjuna, hefðu forsendur Sýnar til að halda úti fréttastofu og sjónvarpsfréttatíma breyst verulega.
Hólmfríður Gísladóttir fréttakona er meðal þeirra sem var sagt upp í dag. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni. Í samtali við fréttastofu segir hún að það hafi kannski ekki komið á óvart að Sýn hætti með sjónvarpsfréttir enda hafi sú umræða margoft komið upp. Aðdragandinn hafi hins vegar verið enginn og uppsögnin í morgun kom henni í opna skjöldu. „Það er hundleiðinlegt að missa vinnuna,“ segir Hólmfríður.
Gylfi Magnússon, prófessor í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fyrrum efnahags- og viðskiptaráðherra, er leiður.
Hörður Magnússon íþróttafréttamaður starfaði á fréttastofunni í um 20 ár.
Lára Zulima Ómarsdóttir, almannatengill og fyrrum fréttakona á Stöð 2 og RÚV, segist hrædd um að þetta veiki stöðu íslenskra fjölmiðla.
Sigursteinn Másson rithöfundur segir að stjórnvöld þurfi að vakna.
Illugi Jökulsson, rithöfundur og dagskrárgerðamaður á Rás 1, segir þetta ömurlegt.
Samkvæmt heimildum fréttastofu vilja stjórnendur Sýnar ekki gefa það upp við starfsfólk hversu mörgum verður sagt upp.
Forstjóri Sýnar hvatti starfsfólk á starfsmannafundinum til að „gefa þessu starfsfólki rými,“ að sögn viðstaddra.
Uppfært kl. 12.25: Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er fjöldi uppsagna undir tuttugu.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands segir ákvörðun Sýnar um að leggja af sjónvarpsfréttir vera gríðarleg vonbrigði.
„Ég held að þetta séu mistök. Ég held að þarna sé fólk að taka ákvarðanir sem skilur ekki fréttir.“
Tugir þúsunda horfi á sjónvarpsfréttir Sýnar í línulegri dagskrá og því því felist meira virði en hægt sé að meta í krónum og aurum.
Nánar er rætt við Sigríði Dögg í hádegisfréttum í útvarpi og í fréttaskýringaþættinum Þetta helst sem er á dagskrá Rásar 1 strax eftir fréttir.
Starfsmannafundur alls starfsfólks með Herdísi Dröfn Fjeldsted, forstjóra Sýnar, hófst klukkan 11.30. Þar er farið nánar yfir málið.
Nokkur óvissa hefur ríkt um framtíð fréttastofu Sýnar síðustu mánuði.
Í mars var tilkynnt að Ásar hf. sem áður hétu Síminn, hefðu náð samkomulagi við Sýn um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar meðal annars Vísi og Bylgjunni. Kaupverðið var sagt rúmir fimm milljarðar króna.
Kaupin gengu hins vegar ekki í gegn þar sem ekki náðist samkomulag milli félaganna eftir áreiðanleikakönnun.
Í skilaboðum frá Herdísi Dröfn Fjeldsted, forstjóra Sýnar, til starfsfólks í dag var tilkynnt að ákvörðunin að leggja niður sjónvarpsfréttir hefði í för með sér fækkun starfa.
„Einkum meðal starfsfólks sem kemur að fréttaframleiðslu og fréttaflutningi í sjónvarpi,“ skrifar hún. Farið verður yfir málið með starfsmönnum á fundi í dag.
Starfsmenn sem fréttastofa hefur rætt við segjast vita lítið um framhaldið.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðherra, segir fréttirnar dapurlegar þar sem þörfin fyrir áreiðanlega og ritstýrða fjölmiðla hafi aldrei verið meiri.
„Á tímum þar sem upplýsingaóreiða og hálfsannleikur veður uppi í gegnum samfélagsmiðla þá er þetta mjög sorglegt og leiðinlegt að horfa upp á það að það sé ekki samkeppni á sjónvarpsfréttamarkaðnum,“ segir hann.
Fréttastofa Sýnar sendir út sinni síðasta sjónvarpsfréttatíma í kvöld. Forsvarmenn fyrirtækisins bera við breyttum neysluvenjum almennings og segjast munu efla fréttaþjónustu á vef og útvarpi í staðinn.
Í tilkynningu til starfsfólks í morgun kom fram að breytingunum myndu fylgja uppsagnir einkum meðal starfsfólks sem kemur að fréttaframleiðslu og fréttaflutningi í sjónvarpi.
Fréttastofa mun fylgja málinu á eftir hér í þessari fréttavakt.