Eyrbekkingurinn Jón Ingi Sigurmundsson hefur verið að mála meira og minna alla sína ævi, haldið fjöldann allan af málverkasýningum og selt mikið af myndum. Þrátt fyrir að vera orðinn 92 ára heldur hann ótrauður áfram að mála.
Ertu ekki stoltur af þessu?
„Jú, mjög, ég er ánægður með þennan sal, hann er mjög góður, gott að sýna hérna,” segir Jón Ingi.
Þú ert enginn nýgræðingur í málaralistinni, ertu ekki búin að mála lengi?
„Jú, ég er búinn að mála í 50 til 60 ár. Mér líður bara mjög vel og heilsan er góð. Ég vona að ég sé ekkert að gefa eftir,” segir Jón Ingi.
Eiginkona Jóns Inga, Edda Björg Jónsdóttir, kveðst vera mjög stolt af sínum manni.
„Já, ég er alltaf stolt af honum, hann er mjög duglegur við þetta. Ég vissi að hann gæti málað þegar hann var ungur en það var eiginlega mér að þakka að hann byrjaði á þessu því ég gaf honum liti. Svo gaf ég honum trönur og þá var ekki aftur snúið,” segir Edda og skellihlær.