75 flótta- og förumenn létust á leiðinni frá Marokkó til spænsku hólmlendunnar Ceuta á norðurodda Marokkó í síðustu viku. Sendinefnd spænsku ríkisstjórnarinnar í Ceuta hefur staðfest tölu látinna.
Um helgina greindu spænsk stjórnvöld frá því að 72 hefðu látist þegar flóttafólk fór til Ceuta í síðustu viku en tala látinna hefur nú verið uppfærð. Flest þeirra sem létust höfðu ætlað sér að synda um fimm kílómetra leið frá Marokkó til Ceuta og drukknuðu á leiðinni.
Samkvæmt spænskum stjórnvöldum hafa 70 þúsund af þeim 72 þúsund flóttamönnum sem komu til Ceuta snúið aftur til Marokkó. Þeir sem eftir eru standa frammi fyrir erfiðum aðstæðum þar sem takmarkaður aðgangur er að húsaskjóli, vatni, mat og hreinlætisaðstöðu.