Alls bárust 449 svör, þar af 432 gild og 17 auð eða ógild. Niðurstöður sýna að 71,3% svarenda vilja ekki sameiningu Flóahrepps við annað sveitarfélag eða sveitarfélög en 28,7% voru því fylgjandi. Í könnuninni höfðu svarendur einnig möguleika á að svara hvaða sveitarfélögum eða svæðum þeir vildu helst snúa sér til varðandi sameiningu ef til sameiningar kæmi og sýna niðurstöður að flestir svarendur myndu velja sameiningu við Skeiða- og Gnúpverjahrepp ef til skoðunar væri að sameina sveitarfélagið.
„Niðurstöðurnar sýna skýra afstöðu íbúa Flóahrepps varðandi sameiningarmál eins og staðan er í dag. Ljóst er að mikill meirihluti íbúa vill að Flóahreppur haldi áfram í sjálfstæði sitt sem sveitarfélag. Svona skýr niðurstaða sýnir okkur einnig að íbúar viraðst vera sáttir með sitt sveitarfélag og það sem hér er að gerast. Sveitarfélagið er í vexti, reksturinn er stöðugur og þjónustu við íbúa er sinnt,” segir Hulda Kristjánsdóttir, sveitarstjóri og bætir við.
„Ég hafði nokkuð sterka tilfinningu fyrir því að meirihluti íbúa væri ekki að hugsa um sameiningar á þessum tímapunkti en að niðurstöðurnar væru svona afgerandi koma kannski aðeins á óvart. Nú liggja niðurstöðurnar fyrir en sveitarstjórn ákvað að leggja þessa könnun fyrir íbúa eftir að erindi barst frá Sveitarfélaginu Árborg þar sem hugmyndir um sameiningu voru viðraðar við Flóahrepp. Tilgangurinn var að átta sig á vilja íbúa og þá hvort fara ætti í frekari vinnu og undirbúning vegna hugsanlegra sameiningarmála. Ég á ekki von á því að sveitarstjórn geri meira í málinu að svo stöddu með svona skýra afstöðu íbúa”.
Í dag eru íbúar Flóahrepps 765 talsins.