66°Norður opnaði í dag nýja verslun á Store Regnegade þar sem verslunin Storm var áður til húsa. Storm þekkja margir Íslendingar en hún hefur skapað sér sess sem ein helsta tísku- og lífstílsverslun Kaupmannahafnar síðustu áratugi. Verslunin er alls 160 fm að stærð og er á tveimur hæðum.
66°Norður opnar nýja verslun í Kaupmannahöfn