Alls hafa um 400 jarðskjálftar mælst í jarðskjálftahrinunni sem hófst snemma í gærmorgun um um 3 km vestur af Húsmúla við Hellisheiði.
Stærsti skjálftinn sem mælst hefur er 3,3 að stærð en sá reið yfir klukkan 17.15 í gær og þá hafa nokkrir aðrir skjálftar mælst rétt undir 3 að stærð.
Veðurstofu Íslands hafa borist ábendingar um að skjálftarnir hafi fundist í nærliggjandi byggðum en skjálftar og skjálftahrinur eru nokkuð algengar á þessu svæði. Síðast var álíka hrina í júní 2024.