Þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar hafa staðið í ströngu það sem af er júlímánuði og hafa sinnt allt að fjórum útköllum á dag.
„Í heild er árið svipað og í fyrra en júlí er aftur á móti búinn að vera annasamur hjá okkur. Við erum búnir að vera í einhverjum 35 útköllum á þyrlum það sem af er júlí á móti um 25 á sama tíma í júlí í fyrra, þannig það er búið að vera svolítið at á okkur undanfarið,“ segir Auðunn Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá Landhelgisgæslunni.
Það eru 40% fleiri útköll það sem af er júlí en í fyrra. Auðunn segir að undanfarna daga hafi útköllin verið þrjú til fjögur á dag, en það sé ekkert eitt sem valdi þessu álagi.
„Það er ekkert sérstakt sem við sjáum í því, það er bara búið að vera óvenjumikið um sjúkraflug og slys, leitir á landi og slíkt. Þannig það eru eflaust bara margir á ferðinni, sem skýrir þetta.“
Er þetta ekki mikið álag á mannskapinn?
„Nei, í sjálfu sér ekki, við náum alveg að höndla þetta ágætlega. Við erum með tvær þyrlur og tvær áhafnir til taks þannig þetta hefur bara rúllað fínt. Auðvitað er þetta stundum álag, klárlega, en við ráðum ágætlega við þetta.“