Kínversk yfirvöld staðfestu í dag að 26 hefðu farist þegar mikil sprenging varð í flugeldaverksmiðju í Liuyang í Húnan-héraði í Kína í gær. 61 slasaðist í sprengingunni.
Fyrsta sprengingin varð rétt fyrir klukkan fimm síðdegis í gær meðan vinna var í fullum gangi. Mikill eldur braust út og mátti heyra fjölda sprenginga í framhaldinu.
Tæplega 500 björgunarmenn voru sendir á staðinn til að bjarga fólki og leita í rústunum.
Mannskæð slys eru nokkuð tíð í kínverskum flugeldaverksmiðjum. Níu fórust í sprengingu í fyrra og þrír í annarri sprengingu 2023.