Að minnsta kosti 12 voru drepnir, þar af tvö börn og einn sjúkraflutningamaður, í loftárásum ísraelska hersins á Líbanon í gær, samkvæmt upplýsingum frá líbanska heilbrigðisráðuneytinu.
Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, segir Ísraela bera ábyrgð á því að hafa drepið háttsettan liðsforingja í Hezbollah í árásum á miðvikudaginn. Hann segir að enginn hryðjuverkamaður sé óhultur fyrir árásum Ísraela.
Stjórnvöld í Ísrael og Líbanon ætla að senda fulltrúa til viðræðna í Bandaríkjunum í næstu viku, samkvæmt heimildum Al Jazeera. Ísraelsher heldur áfram að skipa íbúum í suðurhluta Líbanon að yfirgefa heimili sín og sakar Hezbollah um brot á vopnahléi sem var samþykkt um miðjan apríl.
Stjórnvöld í Líbanon segja Ísraelsher hafa drepið 2.700 manns frá því í byrjun mars. Ísraelski herinn segir að 17 ísraelskir hermenn og einn verktaki hafi verið drepnir í átökum milli Ísraela og Hezbollah.