Að minnsta kosti tíu særðust í drónaárásum rússneska hersins á úkraínsku hafnarborgina Odesu í nótt. Fyrstu sprengingarnar urðu um klukkan hálftvö að staðartíma samkvæmt úkraínska fréttamiðlinum Kyiv Independent. Haft er eftir Oleh Kiper, héraðsstjóra Odesu, að árásirnar hafi beinst að fjölbýlishúsi og hóteli í borginni.
Rússneski herinn hefur gert ítrekaðar árásir á borgina frá því að hann hóf allherjarinnrás í Úkraínu fyrir rúmum fjórum árum.