Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, John Ratcliffe, flaug til Moskvu, höfuðborgar Rússlands, í gær til að fara á fund. CBS News hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum að þetta sé fyrsta heimsókn hans til Rússlands sem yfirmaður CIA, svo vitað sé.
Hvorki rússnesk né bandarísk yfirvöld, Hvíta húsið, Pentagon né bandaríska leyniþjónustan CIA hafa gefið nokkuð upp um með hverjum Ratcliffe var að funda eða hvert efni fundarins var.
Samkvæmt flugupplýsingum flaug Ratcliffe með bandarískri herflugvél af gerðinni C-17A Globemaster frá Bandaríkjunum til Riga í Lettlandi í gærmorgun og þaðan áfram til Moskvu. Vélin snéri til Riga síðdegis í gær.
Breska ríkisútvarpið segir að bandarísk stjórnvöld hafi greint stjórnvöldum í Úkraínu frá því að háttsett sendiferð væri á leið til Moskvu og farið var fram á að hlé yrði gert á árásum þar til heimsóknin væri yfirstaðin.
John Foreman, sem var eitt sinn hernaðarráðgjafi í sendiráði Breta í Moskvu milli 2019-2022, sagði í útvarpsviðtali á Radio 4 að erindi ferðarinnar gæti verið að afstýra stigmögnun átakanna eftir drónaatvikið í Þýskalandi nýverið eða jafnvel samningaviðræður vegna fangaskipta.
Foreman sagði að Bandaríkjamenn sendu alla jafna ekki svo háttsetta embættismenn til Moskvu með stuttum fyrirvara og að ástæðulausu.