Spænska leyniþjónustan (CNI) varaði við mögulegum fjöldaflótta fólks frá Marokkó til Ceuta degi áður en af honum varð. Þetta kemur fram í opinberum skjölum sem birt voru nýlega. Reuters greinir frá.
Að minnsta kosti 72 þúsund manns flúðu frá Marokkó til Ceuta 30. og 31. júlí. Flestir syntu kringum landamæragirðinguna. Að lágmarki 100 manns létu lífið.
Þann 29. júlí greindi CNI yfirvöldum í bæði Marokkó og Ceuta frá því að á samfélagsmiðlahópum væri fólk hvatt til að fara yfir landamærin daginn eftir. CNI sagði frá því að skilaboðin hefðu ratað til um það bil 180 þúsund manns á Facebook og WhatsApp.
„Fyrir þau sem vilja fara yfir er síðasti möguleiki til þess á Kórónudaginn klukkan 8. Yfirvöld verða annars hugar vegna hátíðarhalda og skrúðgangna,“ sagði í einum skilaboðanna. Kórónudagurinn er hátíðardagur í Marokkó sem haldinn er 30. júlí ár hvert.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í þeim rúmlega 40 skjölum sem voru gerð opinber í kjölfar mikillar gagnrýni á meðhöndlun Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, á málinu.
Hann hefur haldið því statt og stöðugt fram að ekki hafi verið hægt að sjá atburðina í Ceuta fyrir. Hann hafði meðal annars sagt þinginu að ekkert hafi gefið til kynna umfang yfirvofandi hörmunga.
Ekki viðvörun, einungis upplýsingar
Miguel Ángel Pérez Triano, fulltrúi yfirvalda í Ceuta, sagði skilaboðin sem þau hafi fengið frá CNI ekki hafa falið í sér viðvörun eða tilkynningu. Aðeins hafi verið um upplýsingar að ræða.
Stjórnarandstöðuflokkar segja ríkisstjórnina hafa afvegaleitt Spánverja.
„Þau voru með upplýsingarnar. Þau bera beina ábyrgð á innrásinni í Ceuta og á þeim sem létust,“ sagði Ester Muñoz, þingmaður íhaldsflokksins á Spáni.
Þá kallaði Jorge Buxadé, þingmaður Vox, flokks yst á hægri væng spænskra stjórnmála, eftir því að Sánchez „og glæponahópur hans“ verði færðir fyrir hæstarétt fyrir svik og öryggisglæpi.