Vopnahlé milli Ísraels og Líbanons stendur tæpt og hafa fulltrúar beggja hliða sakað hver annan um að brjóta gegn því. Ísraelsher hefur gert loftárásir í suðurhluta Líbanons og gefið út rýmingarskipanir en Hezbollah segist hafa ráðist á ísraelskar hersveitir.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir aðgerðir Hezbolla grafa undan vopnahléinu og hann hefur heitið áframhaldandi árásum.
Hezbollah-samtökin hafna hins vegar yfirlýsingum forsætisráðherrans og segja árásir sínar lögmætt svar við endurteknum brotum af hálfu Ísraela og áframhaldandi hernámi í suðurhluta Líbanons.
Á þriðja þúsund Líbana fallið í árásum Ísraels
Að sögn líbanskra heilbrigðisyfirvalda hafa yfir 2.500 manns fallið í árásum Ísraels í landinu frá því í byrjun mars. Þrátt fyrir tímabundið vopnahlé hafa átökin færst í aukana á ný og óvissa ríkir um hvort samkomulagið haldi.
Í gær varð ljóst að ekkert yrði af fyrirhuguðum fundarhöldum með erindrekum ríkisstjórnar Bandaríkjanna og Írans vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Utanríkisráðherra Írans hélt aftur heim eftir fund með pakistönskum ráðamönnum og Bandaríkjaforseti hætti við að senda sína erindreka til Pakistans.
Í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social í gærkvöld sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að ringulreið ríkti innan stjórnkerfis Írana og að óljóst væri hver réði.
„Enginn veit hver ræður, ekki einu sinni þeir sjálfir,“ sagði Trump á Truth Social.
„Þar að auki erum við með öll spilin á okkar hendi, þeir hafa engin! Ef þeir vilja tala, þurfa þeir einungis að hringja!“
Fréttin hefur verið uppfærð. Áður sagði að vopnahléið væri á milli Ísraela og Hezbollah-samtakanna. Rétt er að vopnahléssamkomulagið er á milli Ísraels og Líbanons.