Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir mjög mikilvægt að kaffistofa Samhjálpar hafi öruggan stað í Reykjavík. Hún er vongóð um að góð og farsæl lausn finnist á næstu dögum og vikum. Borginni sé afar umhugað um gesti kaffistofunnar og að þeir fái öruggt skjól.
Kaffistofa Samhjálpar brátt á götunni
Umræða um starfsemi kaffistofu Samhjálpar hefur verið í algleymingi síðustu vikurnar. Allt var til reiðu að opna kaffistofuna á Grensásvegi í júní þegar úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi byggingarleyfi hennar úr gildi á þeim grundvelli að deiliskipulag hefði ekki legið fyrir. Þá höfðu íbúar og fyrirtæki í nágrenni Grensásvegar mótmælt staðsetningunni. Undanfarna mánuði hefur kaffistofan verið í bráðabirgðahúsnæði í Fíladelfíukirkjunni en missir það eftir viku. Þar þiggja 150 manns matargjafir á hverjum degi og því blasir við að starfsemin verði á götunni.
Verða að fá öruggan stað í borginni
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að það sé snúið að finna starfseminni stað. „Það er auðvitað mikilvægt að hún hafi sinn örugga stað hér í borginni og að gestir kaffistofunnar geti mætt þangað á vísan stað þannig að við höfum verið að vinna að því síðust daga og vikur að finna nýtt húsnæði fyrir Samhjálp til að reka þessa starfsemi og aðstoða þau í þeim efnum,“ segir borgarstjóri.
Hefur miklar áhyggjur af þeim sem sækja kaffistofuna
Hildur segir alls kyns hugmyndir á borðinu og vonar að góð og farsæl lausn finnist á næstu dögum eða vikum, flestar kalli þær á breytingar á deiliskipulagi. Flestir sem reiða sig á starfsemi kaffistofu Samhjálpar eru heimilislausir eða eiga í fá hús að venda. „Að sjálfsögðu hef ég áhyggjur, miklar áhyggjur af þessum hópi og ég hef skilning á mikilvægi kaffistofunnar og hvað þau vinna gott og fallegt starf þannig að við erum að vinna þetta starf með þeim og við vonum að það leysist með farsælum hætti,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.
Tæknilega ber borgin ekki ábyrgð
Borgarstjóri segir að tæknilega séð beri borgin ekki ábyrgð á kaffistofu Samhjálpar en hún vilji leysa málið. Aðal ástæðan sé sú að borginni sé umhugað um gesti kaffistofunnar og þann hóp sem þiggi þjónustuna.