Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar hefur ekki ákveðið hvort hún áfrýi dómi Héraðsdóms Suðurlands, sem sýknaði Vinnslustöðina, Hugin og tryggingafélagið VÍS af skaðabótakröfum vegna tjóns á neysluvatnslögn til Eyja.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri segir að málið verði tekið fyrir á fundi bæjarráðs eftir tvær vikur og næstu skref ákveðin þá.
Vestmannaeyjabær og Ljósleiðarinn stefndu Vinnslustöðinni, Hugin og VÍS vegna tjóns sem varð á neysluvatnslögn til Vestmannaeyja og ljósleiðara þar sem vatnslögnin og ljósleiðarinn lágu á hafsbotni í innsiglingunni til Vestmannaeyja. Tjónið varð þegar skipið Huginn VE missti akkeri sem dróst eftir hafsbotninum og skemmdi vatnslögnina og ljósleiðarann.
Í dóminum, sem var birtur í dag, segir að Vinnslustöðin hafi verið sýknuð af fjárhagskröfu Vestmannaeyjabæjar og Ljósleiðarans, þar sem ekki var fallist á að hún væri í reynd útgerðarmaður skipsins, þrátt fyrir að vera eini eigandi Hugins.
Í dóminum segir meðal annars:
„Í málinu liggur fyrir að stefndi Vinnslustöðin hf. er eigandi alls hlutafjár í stefnda
Hugin ehf. [sic] Fyrir liggur að félögin hafa sama heimilisfang og starfsstöð og að ýmsir menn gegna störfum fyrir bæði félögin. Má hér nefna stjórnendurna Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson og Sindra Viðarsson, en jafnframt eru aðrir starfsmenn stefnda Vinnslustöðvarinnar hf. sem sinna störfum í þágu skipsins, en því hefur verið lýst að þá
séu þeir lánaðir til stefnda Hugins ehf. og séu þá undir stjórn og á ábyrgð stefnda Hugins
ehf.
Náin tengsl eru þannig milli stefndu Vinnslustöðvarinnar hf. og Hugins ehf. og
ljóst að í krafti eignarhaldsins getur stefndi Vinnslustöðin hf. haft ráð stefnda Hugins ehf.
í hendi sér.“
Aftur á móti hafi hvorki verið hægt að sýna fram á að eigendurnir, þ.e. Vinnslustöðin, hafi tekið ákvarðanir um skipið eða viðhald þess né tekið ákvarðanir varðandi þetta mál.
Vestmannaeyjabær krafðist ríflega tveggja milljarða króna í skaðabætur ásamt vöxtum og Ljósleiðarinn krafðist ríflega fimmtíu milljóna ásamt vöxtum. Kröfurnar voru að frádreginni greiðslu frá VÍS í febrúar 2025, sem greiddi Ljósleiðaranum tæpar sextán milljónir og Vestmannaeyjabæ rúmar 363 milljónir. Huginn og VÍS viðurkenndu ábyrgð á tjóninu vegna yfirsjónar eða vanrækslu manna sem félagið bar ábyrgð á en höfnuðu bótakröfunni.
Huginn og VÍS voru sýknuð á grundvelli níundu greinar siglingalaga, sem kveða á um takmörkun ábyrgðar útgerðarmanna.